96 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 14. Valdimar Pálsson, skáld, að heimili sínu í Foam Lake, Sask. Fddur 14. marz 1861 að Fótaskinni í Reykja- dal. Foreldrar: Páll Jóhannsson frá Fótaskinni og Herdís Eiríksdóttir frá Litlu-Tungu, og þar ólst Valdi- mar upp, en til Vesturheims fór hann 17 ára að aldri. Páll faðir hans var albróðir Sigurbjörns skálds, föður frú Jakobínu Johnson skáldkonu í Seattle, Wash. 15. Grímur Eyford, um langt skeið starfsmaður hjá Þjóð- brautakerfinu Canadiska (Canadian National Rail- ways), á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg, Man. Fæddur að Reistará i Eyjafirði 2. febr. 1869. Foreldr- ar: Sigurður Sigurðsson og Margrét kona hans. Kom vestur um haf 1893. (Sjá Almcmak 1940). 16. María Sigfríður Agnes Austmann, í Winnipeg, Man 22 ára að aldri. Foreldrar: Olgeir Austmann (látinn fyrir nokkru) og Guðfríður, til heimilis við Spy Hill Sask. 19. Sigurður Davidson, tannlknir, á Almenna sjúkra húsinu í Winnipeg, um fimtugsaldur. 24. Sigríður Jónasson, ekkja Björns Jónasson (d. 1938) að heimili bræðra sinna, Jóns og Sigurðar Johnson, nágrenni Mountain, N. Dak. Fædd á Stafni í Reykja dal í Þingeyjarsýslu 15. okt. 1860. Kom hingað til lands með manni sínum 1883. 26. Gróa Þorleifsdóttir Kjartansson, í Winnipeg, Man. Fædd í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu 26. nóv. 1854. Fluttist til Vesturheims með mann sínum (d. 1933) árið 1888. 28. Halldór Haldórsson, á Almenna sjúkrahúsinu í Win- nipeg, Man. Fæddur á Isafirði 1876. Árið 1887 fluttist hann vestur um haf með foreldrum sínum, Halldóri Haldórssyni frá Seli í Bolungarvik og Kristínu Páls- dóttur frá Isafirði. Meðal systkina hans er Salome Halldórsson þingkona í Winnipeg. JANÚAR 1940 1. Arni Goodman frá Tyndall, Man., á Grace sjúkrahús- inu í Winnipeg, Man. Hann var 49 ára að aldri, ó- kvæntur, og stundaði um langt skeið smíðar í Winni- peg. Ættaður úr Borgarfirði syðra. 1. Sigurður Johnson, í Seattle, Wash.; dó af afleiðingum af bílslysi. 2. Snjólfur J. Austmann, að heimili sonar síns í Kena- ston, Sask., nær áttræður að aldri. Fluttist vestur um haf af Austurlandi með konu sinni árið 1883-