ALMANAK 1941 97 5. Helga Jónatansdóttir Sólmundsson, kona Júlíusar J. Sólmundsson, á heimili sínu að Gimli, Man. Fædd 5. júlí 1881 í B á Höfðaströnd í Skagafirði; kom vestur um haf með bróður sínum Jóni Jónatanssyni skáldi og Önnu konu hans árið 1901. Foreldrar: Jónatan Jóna- tansson og Guðný Björnsdóttir. 7. Kristín Jónsdóttir, ekkja Jakobs Jónsson (d. 1930), að heimili sínu í Spanish Fork, Utah. Fædd 16. febr. 1869 á Eiði í Eyrarsveit; kom til Vesturheims 1913. Foreldrar: Jón smiður Jónsson og Guðrún Daníels- dóttir. 12. Jakobína Gísladóttir (Gillis), í Winnipeg, Man., systir Sveinbjörns Gislasonar trésmiðs þar í borg. Hún var á sjötugsaldri og kom til Vesturheims 1887. Hún var ættuð frá Mýrum í Húnavatnssýslu. 13. Bárður Sigurðsson, að heimili sínu í Winnipeg, Man. Fæddur 17. sept. 1852. Foreldrar: Jón Sigurðsson á Æsustöðum í Eyjafirði og Arnbjörg Jónsdóttir frá Kambhóli í Arnarneshreppi. Kom hingað til lands árið 1878. 14. Jón G. Gíslason (Gillies), á heimili sínu að Gimli, Man. Fæddur í sept, 1852 og mun hafa alist upp hjá foreldrum sínum að Eyvindarstöðum í Húnavatns- sýslu. Kona hans, Elizabet Jónsdóttir, dó 1917. Hann er talinn að hafa komið til Vesturheims árið 1882. Bræður hans eru þeir Kristján Gíslason, kaupmaður á Sauðárkrók, og E. G. Gillies í New Westminster, B. C, kunnur af skáldskap sinum og þýðingum. 18. Séra Jóhann Bjarnason, ritari Hins Lúterska Kirkju- félags Islendinga í Vesturheimi, að heimili sínu í Selkirk, Man., þar sem hann var þá þjónandi prestur. Fæddur 7. des. 1864 að Stóru-Ásgeirsá í Víðidal f Húnavatnssýslu. Foreldrar: Bjarni Helgason frá Gröf í Víðidal og Helga Jónsdóttir, ættuð úr Eyjafirði. Hann kom vestur um haf 1890. Meðal barna séra Jó- hanns og Helgu Jósefsson, sem lifir mann sinn, er Bjarni prestur að Gimli, Man. 19. Júlíus J. Sólmundsson, bróðír séra Jóhanns P. Sól- mundssonar (d. 1935), á heimili sínu að Gimli, Man., 58 ára að aldri. Foreldrar: Sólmundur Símonarson og Guðrún Arnadóttir á Heggstöðum i Borgarf jarðarsýslu. 21. Elías Elíasson, á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg, Man. Frá Tröðum í Álftafirði í Isafjarðarsýslu, fædd- ur 1. apríl 1869. Fluttist til Vesturheims 1904.