ALMANAK 1941 99 7. Guðrún Hallgrímsdóttir, ekkja Sigurðar Guðmunds- sonar, að heimili sinu í grend við Garðar, N. Dak. Fædd í Vík í Flateyjardal 15. okt. 1851. Foreldrar: Hallgrímur Hallgrímsson og Sesselja Þorsteinsdóttir. Fluttist til þessa lands með manni sínum frá Skálum á Langanesi árið 1882. 9. Kristmundur Sæmundsson, að Gimli, Man. Fæddur 21. nóv. 1855 á Gautshamri á Selströnd í Kaldrana- nessveit í Strandasýslu. Foreldrar Sæmundur Björns- son og Anna Einarsdóttir. Kom vestur um haf 1888 og var um mörg ár vitavörður að Gimli. 10. Gísli Jónasson, bóndi og landnámsmaður að Hlé- skógum í Geysisbygð í Nýja-lslandi, að heimili sínu. Fæddur 15. sept. 1877 að Teigi í Óslandshlíð í Skaga- firði. Foreldrar: Jónas Þorsteinsson frá Ipishóli og Lilja Friðfinnsdóttir frá Kolbeinsdal. Fluttist til Vest- urheims með foreldrum sínum árið 1883. (Sjá Almanak 1932). 21. Solveig Clara Blanche Bennett, á Almenna sjúkra- húsinu í Winnipeg, Man. Fædd 28. janúar 1897 i Árborg, Man. Foreldrar: Árni Bjarnarson frá Hrauney og Sólveig Jónsdóttir frá Skútustöðum. Komu þau hjón vestur um haf árið 1893. 22. Elísabet Guðjónsdóttir Sigurðsson, að heimili sínu í Blaine, Wash. Fædd 8. april 1870 í Sultum í Keldu- hverfi í Norður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Guðjón Jóhannesson og Þorbjörg Sigmundardóttir. Kom til Ameríku árið 1893. 24. Halldóra Stefania Stevenson, að heimili foreldra sinna í Winnipegosis, Man. Fædd 22. apríl 1926. Foreldrar: Vígbald og Margrét Stefánsson (Stevenson). 24. Guðríður Helga Johnson, ekkja Jóhanns Kristjáns Johnson frá Dvergasteini i Seyðisfirði, að heimili sínu í Winnipeg, Man. Fædd að Jórvík i Suður-Múlasýslu 16. jan. 1870. Foreldrar: Hoseas Björnsson og Guð- björg Gísladóttir. Fluttist vestur með manni sínum árið 1904. 25. ívar Jónasson, skósmiður, á elliheimilinu Betel á Gimil, Man. Fæddur á Skjálg í Kolbeinshrepp í Mýra- sýslu 31. júlí 1859. Foreldrar: Jónas Jónasson og Guðrún kona hans, er síðar bjuggu að Kolbeinsstöð- um. Fluttist til Vesturheims um þrítugt. 28. Hjálmur Þorsteinsson trésmiður, á sjúkrahúsinu að Gimli, Man. Fæddur 6. apríl 1870 á Hæli í Flókadal í Borgarfjarðarsýslu. Foreldrar: Þorsteinn Guðmunds-