100 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: son og Ljótunn Pétursdóttir. Kom vestur um haf 1894. 1 febr. Stefán Pétur Hallson, á sjúkrahúsi í Winni- peg, 17 ára að aldri. Foreldrar: Gísli og Guðrún Hallsson að Oak View, Man. MARS 1940 6. Guðrún Sveinsson, ekkja Sveins Sveinsson (d. 1924), að heimili tengdasonar síns og dóttur, Steina Björns- son og konu hans, í Hensel-bygð í N. Dak. Fædd 6. apríl 1856 á Veðramóti i Gönguskörðum í Skagafjarð- arsýslu. Fluttist vestur um haf 1876, giftist næsta ár og námu þau hjónin land i N. Dak. 1879. 8. Gisli Jónsson, á Grace sjúkrahúsinu i Winnipeg, Man. Fæddur 25. sept. 1857 að Bygðarholti i Lóni í Austur- Skaftafellssýslu. Foreldrar: Jón Jónsson og Ragn- hildur Gísladóttir. Flutti vestur um haf 1903, land- námsmaður við Manitobavatn. (Sjá Almanak 1937). 9. Þorsteinn Þorsteinsson (Th. E. Thorsteinsson), banka- stjóri, á sjúkrahúsi í Winnipeg, Man. Fæddur á Eskifirði í Suður-Múlasýslu 7. október 1883. Fluttist hingað til lands 1895. 12. Gunnlaugur (George) Anderson, á Victoria sjúkra- húsinu í Winnipeg, sextugur að aldri. Kom vestur um haf 1886 úr Borgarfirði í Norður-Múlasýslu. 21. Guðriður Gilbertsson, kona Björns Gilbertsson, á Almenna sjúkrahúsinu í Selkirk, Man., 85 ára að aldri. Ættuð úr Snæfellsnessýslu. 2l. Sidney T. Thorwaldson, verzlunarmaður, að heimili sinu í St. Cloud, Minnesota, 41 árs að aldri. Fæddur að Mountain, N. Dak., sonur Elísar og Hallfríðar Thorvaldson, sem þar bjuggu um langt skeið. 29. Þórunn Inghildur Einarsdóttir Thorleifsson, að heim- ili Einars Sigurðssonar við Churchbridge, Sask. Ættuð frá Staka-Hjalla í Hjaltastaðaþinghá í Norður-Múla- sýslu. Björn Þorleifsson maður hennar lést 1918. APRIL 1940 4. Freyja Ólafson, kona Gísla Ólafson, að heimili sínu í íslenzku bygðinni að Brown, Man., rúmlega fimtug að aldri. Foreldrar: Friðrik Swanson, listmálari í Winnipeg og Sigurbjörg Sigfúsdóttir. 5. Helga Jónsdóttir Freeman, að Lundar, Man., 87 ára að aldri. Fædd að Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd. Kom til Vesturheims 1888. Ekkja Magnúsar Freeman, sem lengi bjó að Lundar.