ALMANAK 1941 101 6. Halldóra Guðmundson (Goodman), ekkja Jóns Guð- mundson (d. 1927), á elliheimilinu Betel að Gimli, Man. Fdd 29. des. 1858 að Höskuldsstöðum í Laxárdal í Dalasýslu; kom vestur um haf 1882. 8. Ingibjörg Guðbrandsdóttir Árnason, við Churchbridge Sask., á níræðisaldri. Ættuð frá Arnórss.töðum í Barðastrandarsýslu. Maður hennar var Árni Árnason, fyrrum verzlunarmaður í Churchbridge. 14. Sigurður M. Melsted, að heimili sínu nálægt Moun- tain N. Dak., hniginn að aldri. Þingeyingur að ætt og uppruna, fæddur á Halldórsstöðum í Kinn. For- eldrar: Magnús Grímson og Elín Magnúsdóttir. Flutt- ist kornungur til Vesturheims með móður sinni, sem þá var ekkja. 14. Unglingspilturinn Hallgrímur Páll Anderson. á sjúkra- húsi í Russel, Sask. Sonur Þorleifs Anderson við McNutt, Sask. 18. Jón Halldórsson Hall, á Almenna sjúkrahúsinu í Win- nipeg. Fæddur 5. jan. 1867. Hafði verið vestan hafs í meir en fimtíu ár. 20. Bjarni Jasonsson, á heimili sínu i Foam Lake, Sask. Fæddur á Arnarhóli í Flóa í Árnessýslu 25. sept. 1862. Foreldrar: Jason Eiríksson og Guðbjörg Goðsveins- dóttir. Fluttist vestur um haf eitthvað hálfþrítugur. 22. Gísli Brynjólfsson, að heimili sínu í Winnipeg, Man., 42 ára að aldri. Fæddur á Skjðldólfsstöðum í Breið- dal í Suður-Múlasýslu. Foreldrar: Brynjólfur Björg- ólfsson og Þórunn Ólafsdóttir. 25. Sólveig Kristjánsdóttir Johnson, að heimili sonar síns, Kristjáns Johnson, í Crest, Sask. Fædd 1857 að Odd- stöðum í Lundarreykjadal í Borgarfjarðarsýslu. For- eldrar: Sveinb.iörn Sveinþiörnsson og Guðlaug Jóns- dóttir. Fluttist til Vesturheims með manni sínum, Birni Johnson (d. 1932), árið 1886. 29. Lárus Guðmundsson, að Gimli, Man., fyrrum ak- týgjasmiður í Árborg. Fæddur að Elliðaá í Staðar- sve'it árið 1853, en fluttist vestur um haf til Canada 1887. Meðal barna hans eru skáldkonan Laura Good- man Salverson í Winnipeg og Hjörtur Lárusson hljómsveitarstjóri í Minneapolis, Minn. MAI 1940 1. Gunnar Sigurðsson, fyrrum kjötverzlunarmaður, varð bráðkvaddur i Winnipeg, Man., fullra 66 ára að aldri. Hann kom foreldrum sínum vestur um haf 1887 til