104 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: I maí. Guðmundur Stefán Stefánsson, í Selkirk, Man., rúmlega sextugur að aldri; ættaður úr Skagafirði. JÚNÍ 1940 1. Eiríkur Rafnkelsson, að heimili Kristjáns og Stein- unnar Þorvarðsson að Lundar, Man., nærri níræður að aldri. Fæddur fyrsta sunnudag í vetri árið 1850 í Flatey að Mýrum í Hornafirði. Foreldrar: Rafnkell Eiríksson og Þorgerður Sigurðardóttir; en hann ólst að miklu leyti upp á Hofi í Öræfum. Fluttist vestur um haf með konu sinni, Steinunni Jónsdóttur frá Hofi (d. 1931), 1889. (Sjá frásagnir hans í Almanaki 1929 og 1930). 2. Björg Pétursson, að heimili sínu í Fjalla-bygð, norður af Milton, N. Dak. Fædd 31. maí 1863 í Mjóanesi í Suður-Múlasýslu. Foreldrar: Magnús Vilhjálmsson og Guðrún Jónsdóttir. Kom til Vesturheims 1888. 2. Hjúkrunarkonan Þórdis Jónasdóttir Árdal frá Winni- peg, á New England Deaconess sjúkrahúsinu í Boston, Mass. Hún var ættuð úr Húnavatnssýslu, 47 ára að aldri. 3. Jón Guðmundsson á heimíli sínu að Gimli, Man. Fæddur 15. ágúst 1865 og voru foreldrar hans Guð- mundur Þormóðsson í Hjálmsholti og Margrét Jóns- dóttir prests á Mosfelli í Grímsnesi. Fluttist með konu sinni vestur um haf árið 1900. 9. Kristín Jónsdóttir Magnússonar frá Tindum i Geira- dal, að heimili dóttur sinnar, Önnu Garryson, í Blaine, Wash. Fædd 17. sept. 1849; móðir hennar var Karitas Níelsdóttir frá Kleifum í Gilsfirði, systir séra Sveins Níelssonar á Staðarstað og Daða hins fróða, sagn- fræðings. Kristín var ekk.ia Einars Magnússonar Westford (d. 1911), fyrrum bónda í Garðar-bygð og Mouse River bygð í Norður Dakota. 10. Einar Guðmundsson Martin, að heimili sínu Garði í Breiðuvík, við Hnausa, Man. Fæddur 16. jan. 1880, sonur Guðmundar Marteinsson og Kristinar Gunn- laugsdóttur, er námu land að Garði í Breiðuvík í sömu bygð. 11. Guðmundur Thorleifsson, að heimili sínu í grend við Otto, Man., 82 ára að aldri. 12. Jórunn Kristólina Halldórsson, ekkja H. K. Halldórs- son, í Winnipeg, Man. Fædd 1864, en fluttist vestur um haf 1883.