ALMANAK 1941 105 17. Guðný Guðmundsdóttir Stevens, að heimili tengda- sonar síns og dóttur, Þorsteins Oliver og konu hans, í Winnipegosis, Man. Fædd í Reykjavík 24. maí 1850. Foreldrar: Guðmundur Nikulásson, ættaður úr Reykja- vík, og Sigríður Steingrímsdóttir, ættuð úr Skagafirði. Stefán Friðbergsson, maður Guðnýjar, ættaður úr Skagafirði, dó 1898. Hún fluttist til Vesturheims með dætrum sínum nokkru eftir aldamótin. 19. Ágústa Friðrika Anderson, unglingsstúlka, í Yorktton, Sask. Dóttir þeirra Þorleifs Anderson og konu hans við McNutt, Sask. 20. Sigtryggur F. Ólafsson, að heimili fóstursonar síns, S. O. Bjerring, í Winnipeg, Man. Fæddur að Garði í Aðal-Reykjadal 25. okt. 1856; fluttist hingað til lands 1885. 20. Kristján Johnson í Watertown, S. Dakota. Fæddur að Syðra-Lóni á Melrakkasléttu 1849. Fluttist af íslandi til Lyon County í Minnesota árið 1879. 22. Björg Jóhannesson, að heimili dóttur sinnar í Selkirk, Man. Fædd 14. nóv. 1862 að Grundarkoti í Blönduhlíð i Skagafjarðarsýslu. Foreldrar: Erlendur Jónsson frá Hæli í Húnavatnssýslu og Guðrún Björg Aradóttir Hermannssonar, ættuð úr Eyjafirði. Fluttist vestur um haf með manni sínum Jóhanni Ingjaldssyni (d. 1902) árið 1887. 23. Sigurður Pétursson, úr Árnes-bygðinni í Nýia íslandi, á siúkrahúsinu að Gimli, Man. Fæddur á Ingveldar- stöðum í Skagafjarðarsýslu 27. sept. 1862. Fluttist til Vesturheims árið 1883 og settist að hjá föður sínum, Pétri Árnasyni, er þá var fluttur vestur og bjó í Árnes- bygð. 26. Jónatan Rósant Jóntansson, smiður, á sjúkrahúsinu í Wadena, Sask. Fæddur að Flögu í Hörgárdal í Eyja- fjarðarsýslu 14. ágúst 1866, en kom vestur um haf sumarið. 1886. 27. Guðrún Bjarnason, kona Ásgeirs Bjarnasonar, að heimili sínu í Selkirk, Man. Fædd 26. ágúst 1875 að Oddastöðum í Hnappadalssýslu. Foreldrar: Einar Thorvaldsson Dalmann, af Krossholtsætt í Mýrasýslu, og Guðríður Magnúsdóttir Dalmann, af Reykholtsætt. Kom til Canada með foreldrum sínum 1883. 29. Elinborg Jónsdóttir Goodmanson, ekkja Lofts gull- smiðs Guðnasonar (Goodmanson, d. 1900), að heimili tengdasonar síns og fósturdóttur, G. J. Oleson og konu hans, í Glenboro, Man. Fædd að Ásgeirsstöðum í