106 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON: Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu 7. sept. 1850. Foreldrar: Jón Tómasson og Guðrún Jónsdóttir. Fluttist til Vest- urheims með manni sinum árið 1883. 30. Bergþór Johnson, á sjúkrahúsinu í Vita, Man. Fæddur 10. apríl 1864 á Torfufelli í Eyjafirði. Foreldrar: Jón Jóhannsson og Bergþóra Sigurðardóttir Þórðarsonar frá Gröf í Eyjafirði. Fluttist hingað til lands með foreldrum sínum, er settust að í Nýja Islandi, árið 1874. Landnámsmaður í Piney Man. (Sjá Almanak 1934). JÚLÍ 1940 11. Pálmi Sigtryggsson, fyrrum bóndi að Brú, Man., á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. Fæddur að Tyrf- ingsstöðum í Akrahreppi í Skagaf jarðarsýslu 17. ágúst 1862. Kom vestur um haf á tvítugsaldri. 13. Jón Sigurðsson, að heimili sínu í Blaine, Wash. Fædd- ur í Blönduhlíð í Skagafirði 15. nóv. 1886. Foreldrar: Sigurður Jónsson og Sigurlaug Sveinsdóttir. Mun hafa verið nær hálf-þrítugur, er hann flutti til Vesturheims. 14. Eggert Stefánsson, á Almenna sjúkrahúsinu í Winni- peg, Man., 84 ára að aldri. Ættaður úr Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu. Kom hingað til lands árið 1911 með konu sinni, Soffiu Marteinsdóttur, sem látin er fyrir sjö árum. 14. Árni Páll Matheson, hermaður, í Pembroke, Ont., er var við heræfingar þar í nágrenninu. Fæddur í Mið- sandstúni í Eyjafirði 16. april 1906. Foreldrar: Thor- steinn Matthíasson og María Gunnarsdóttir. Er hún látin fyrir mörgum árum, en Þorsteinn á heima í grend við Winnipeg Beach, Man. 19. Jón Atli Magnússon, að heimili sonar síns við Lang- ruth, Man. Fæddur á Vesturlandi 17. júní 1855, en kom vestur um haf 1905. Guðbjörg Hjaltadóttir kona hans dó 1930. 22. Steinunn (Christine) S. Baker, frá Mountain View- sveit í Washington-ríki, á súkrahúsi í Bellingham, Wash. Fædd að Fremri Fitjum í Miðfirði í Húna- vatnssýslu 7. febr. 1869. Foreldrar: Finnur Finnsson og Guðrún Árnadóttir. Fluttist til Vesturheims árið 1887. 23. Guðrún Hallsdóttir, að heimili Jóhanns Peterson og konu hans í Selkirk, Man. Fædd að Leirulæk í Mýra- sýslu 5. marz 1857. Foreldrar: Hallur Jónsson og Ragnhildur Guðnadóttir. Fluttist vestur um haf 1901