ALMANAK 1941 107 með manni sínum, Þórði Péturssyni frá Smiðjuhóli í Álftavatnshreppi (d. 1927). 30. Ásbjörn Sturlaugsson, að heimili sínu í Svoldar-bygð í N. Dak. Fæddur í Dalasýslu 25. ágúst 1875. For- eldrar: Jónas Sturlaugsson og Ásgerður Björnsdóttir. Kom til Ameríku með foreldrum sínum 1883 og ól allan aldur sinn í nefndri bygð. ÁGÚST 1940 3. Kristján J. Sveinsson frá Árborg, Man., á Johnson Memorial sjúkrahúsinu að Gimli, Man. Fæddur á Seyðisfirði í Norður-Múlasýslu 1881. Foreldrar: Jón Sveinsson, bróðir Benedikts assessors og sýslumanns Sveinssonar, og síðari kona Jóns, Jóhanna Jóhanns- dóttir. Jón og Jóhanna námu land á Þingvöllum í Geýsis-bygð í Nýja-íslandi og ólst Kristján þar upp_; en sjálfur var hann landnemi í bygðinni. (Sjá Almanak 1932). 6. Vilhjálmur Pétursson, kaupmaður, að heimili sínu í Baldur, Man. Fæddur að Stóruborg í Víðidal í Húna- vatnssýslu 15. okt. 1885. Foreldrar: Pétur Kristófers- son og seinni kona hans Elizabet Guðmundsdóttir, prests á Melstað. Fluttist til Vesturheims 1912. 7. Clara Florentina Anderson Thomas, í Elmwood, Man., ekkja Franz Thomas, er lézt áður í Chieago, 111. Hún var 57 ára að aldri, dóttir þeirra Thorsteins Anderson og konu hans, er búsett voru í Winnipeg, en eru látin fyrir löngu. 10. Þorbjörg Peterson, ekkja Þorláks Péturssonar í Seattle, Wash., háöldruð. Hún átti lengi heima í Winnipeg. 11. Jóhanna Johnson, ekkja Bergþór K. Johnson, í Win- nipeg, Man., 86 ára að aldri. 13. Stefán Haldórsson frá Hnausum, Man., á sjúkrahúsi í Winnipeg, Man. Ættaður frá Sandbrekku í Hjalta- staðaþinghá, fæddur 8. apríl 1861. Foreldrar: Hall- dór Magnússon hreppstjóri og Guðrún Jónsdóttir. Fluttist hingað til lands 1903. 13. Ástriður Sigurðardóttir Árnason, í Elfros, Sask., nærri 78 ára að aldri. Ættuð úr Lóni í Austur-Skaftafells- sýslu. Foreldrar: Sigurður Gíslason og Guðný kona hans. 15. Bárður Einarsson, fyrrum bóndi og landnámsmaður að Skógargerði í Árnes-bygð í Manitoba, að elliheim- ilinu Betel að Gimli, Man. Fæddur að Slíum í Meðal- landi í Vestur-Skaftafellsýslu 8. maí 1866. Foreldrar: