108 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON: Einar Ólafsson og Una Jónsdóttir. Kom vestur um haf 1903. 16. Valgerður Thordarson, að heimili systurdóttur sinnar í Winnipeg, Man. Fædd að Árnabrekku í Borgar- hreppi í Mýrasýslu 4. ágúst 1872. Foreldrar: Þórður Guðmundsson og Bergþóra Kristin Bergþórsdóttir. Kom til Vesturheims með manni sínum, Árna Þórðar- syni (d. 1911) árið 1897; hann var ættaður úr Garði. 18. Ingibjörg Arnveig Sigfúsdóttir Johnson, að heimili sínu í Brown, Man. Fædd á Hólmi i Skagafirði 26. nóv. 1861. Fluttist vestur um haf með foreldrum sin- um 1876. Maður hennar, Jónas Magnús Johnson, dó á Gimli, Man., árið 1930. 19. Björgvin Jónsson Vestdal, að heimili sínu í grend við Wynyard, Sask. Fæddur á Gestreiðarstöðum í Jökul- dal í Norður-Múlasýslu 14. nóv. 1885. Foreldrar: Jón Vestdal og Anna Kristrún Gunnlaugsdóttir. Fluttist til Ameríku með foreldrum sínum 1904. 20. Guðmundur Ólafsson, að heimili sínu í Hólarbygðinni í grend við Tantallon, Sask. Fæddur að Firði í Mjóa- firði í Suður-Múlasýslu 7. okt. 1867. Fluttist vestur um haf 1887. Kona hans, Sigríður Valgerður Jóns- dóttir, dó 1936. Guðmundur var bróðir Sveins Ólafs- sonar alþingismanns. 24. Kristín Soffia Jónsson, að heimili Björns sonar síns norðanvert við Riverton, Man. Fædd 23. sept. 1865. Foreldrar: Baldvin Guðmundsson og Elín Gísladóttir, er bjuggu síðast á Hringsstöðum í Hjaltastaðaþinghá i Norður-Múlasýslu. Kom til Ameriku 1893. 25. Magnús Davíðsson, í Winnipeg, Man. Fæddur á Hofstöðum í Álftaneshreppi í Mýrasýslu 25. okt. 1854. Foreldrar: Guðrún Sigurðardóttir og Davið Jóhannes- son. Fluttist hingað til lands 1901. 25. Ármann Jónasson, í Riverton, Man., 79 ára að aldri. Þingeyingur að ætt, og hétu foreldrar hans Jónas Ólafsson og Margrét Magnúsdóttir. Kona hans Ósk Guðmundsdóttir (d. 1917) var ættuð úr Eyjafirði; þau komu vestur um haf 1893. 26. Friðrik Hanson, á Grace sjúkrahúsinu í Winnipeg, Man. Fæddur 7. maí 1864 á Kárastöðum í Húna- vatnssýslu. Foreldrar: Hans Jóhannsson og Nátt- fríður Jónsdóttir, en móðir Náttfríðar var Bóthildur Arngrimsdóttir lögsagnara á Melstað í Miðfirði. Frið- rik kom frá Islandi til Canada fyrir 47 árum síðan og var altaf til heimilis i Winnipeg.