ALMANAK 1941 109 27. Anna Sigríður Friðfinnsson, ekkja Jóns tónskálds Friðfinnssonar (d. 1937), á Grace sjúkrahúsinu í Win- nipeg, Man., 73 ára að aldri. Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson að Þverá í Staðarbygð í Eyjafirð'' og Lilja Ólafsdóttir kona hans. Kom vestur um haf 1881. 27. Sigurður Bárðarson, "hómópati", í Seattle, Wash. Fæddur á Litla Hrauni í Kolbeinsstaðahrepp í Hnappadalssýslu 12. júní 1851. Foreldrar: Bárður smiður Sigurðsson og Solveig Árnadóttir. Fluttist til Vesturheims 1886. Sigurður var landnámsmaður við Blaine, Wash., og víðkunnur meðal tslendinga vestan hafs fyrir lækningar sínar. Meðal barna hans er Otto Wathne, skólastjóri í Carmel, Californía. (Sjá Almanak 1926). SEPTEMBER 1940 2. Magnús Ragnar Magnússon, útgerðarmaður að Hnaus- um, Man., á Almenna s.iúkrahúsinu i Winnipeg, Man., 44 ára að aldri. Foreldrar: Magnús Magnússon og kona hans, sem lengi hafa búið á Eyjólfsstöðum í grend við Hnausaþorp. 5. Stefán Johnson, að heimili sínu í Upham, N. Dak. Fæddur 13. júlí 1859 að Einfætisgili í Bitruhreppi í Strandasýslu. Foreldrar: Jón Magnússon póstur og Þórunn Þórðardóttir. Fluttist til Vesturheims af Hey- nesi á Akranesi árið 1886. Einn af landnámsmönnum islenzku bygðarinnar að Mouse River, N. Dak. (Sjá Almanak 1912). Meðal barna hans er Jón Magnús myndhöggvari í Frankfort, Indiana, í Bandaríkjunum. 12. Jónína Guðrún Isfeld, í Langruth, Man. Ættuð úr Þingeyjarsýslu, fædd árið 1872. Foreldrar: Friðfinn- ur Thorkelsson og Þuríður Jónsdóttir. Fluttist vestur um haf 1881 12. Inga Guðrún Guðnason, ekkja Thorláks Guðnasonar, að heimili dóttur sinnar í Glenboro, Man. Fædd á Draflastöðum ( Fnjóskadal 29. febr. 1865. 15. Pétur Jakobsson, í Langruth, Man. Hann var 77 ára að aldri og hafði verið í Canada í 67 ár. 17. Sigrún Hansesson, ekkja Benedikts Hannessonar (d. 1903), á Billings Memorial sjúkrahúsinu í Chicago, 111. Fædd í Viðvík í Skagafjarðarsýslu 16. april 1866. Foreldrar: Daníel Ólafsson og Svanhildur Loftsdóttir. Kom til Ameríku 1899. 202. Stefán ólafur Brandson, að heimili sonar síns, Sig- urðar Brandson, í Winnipeg, Man. Fæddur a'ð Ingis-