110 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: hóli í Ytraneshreppi í Snæfellsnessýslu 25. febr. 1866. Foreldrar: Guðbrandur Guðbrandsson og Guðbjörg Magnúsdóttir. Kom hinagð til lands árið 1905. 21. William Thorarinsson, i Winnipeg, Man. Fæddur á Húsavík 10. febr. 1872. Fluttist 12 ára að aldri vestur um haf með foreldrum sínum. 21. Sigríður Hall, ekkja Jónasar Hallgrimsson Hall, að heimili sinu í grend við Garðar, N. Dak. Fædd á Hóli í Köldukinn í Þingeyjarsýslu 2. nóv. 1852. For- eldrar: Kristján Árnason og Bóthildur Grímsdóttir. Kom til Vesturheims með manni sinum (d. 1931) árið 1874. Meðal barna þeirra er Steingrímur píanó- kennari og tónskáld i Wynyard, Sask. 23. Kristíana Sigríður Helgadóttir Einarsson, að heimili systur sinnar, Þóru Paulson, í Vancouver, B. C. Fædd að Vatnsenda í Eyjafirði 16. sept. 1869. Fluttist vest- ur um haf með foreldrum sinum 1876. Kristín og maður hennar, Jón Einarsson (d. 1937) bjuggu við Foam Lake, Sask., um 30 ára skeið. 23. Tryggvi Thorsteinsson, að heimili sínu við Tantallon, Sask., 76 ára að aldri. 26. Guðrún Vigfúsdóttir Johnson, að heimili sinu að Minnewakan, Man. Fædd á Flatey á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu 24. maí 1864. Foreldrar: Vigfús Sig- urðsson og Þórey Bjarnadóttir, ættuð úr Vestur- Skaftafellssýslu. Kom hingað til lands árið 1892. OKTÖBER 1940 7. Pétur Kristjánsson, að heimili sínu í Victoría, B. C. Fæddur að Skaflakoti í Staðarstaðar-prestakalli í Snæfellsnessýslu 11. ágúst 1860. Pétur og kona hans Kristín Ólina Guðmundsdóttir, er lifir hann, komu vestur um haf fyrir 55 árum síðan og hafa búið í Victoria yfir 50 ár. 7. Sigurbjörg Guðmundsdóttir Henry, að heimili tengda- sonar síns og dóttur, J. Johnson og konu hans, í Van- couver, B. C. Fædd 12. apríl 1851 að Steinsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði. Foreldrar: Guðmundur Jóns- son og Sigríður Árnadóttir. Kom til Vesturheims árið 1883. 11. Carl J. Anderson frá Winnipeg, fyrrum póstþjónn, á sjúkrahúsinu á Gimli, 66 ára að aldri. Ættaður úr Borgarfirði eystra.