ALMANAK 1941 111 13. Jón Magnússon, að heimili sínu í Selkirk, Man., Fæddur að Stærribæ í Grímsnesi í Árnessýslu 24. okt. 1873. Foreldrar: Magnús Hinriksson og Þuríður Jóns- dóttir. Fluttist til Ameríku úr Vestmannaeyjum 1913. 14. Kristín Stephenson, ekkja Vigfús Stephenson (d. 1937), að heimili sonar síns og tengdadóttur, G. L. Stephen- son og konu hans, í Winnipeg, Man. Nærri 82 ára að aldri, fædd að Klungurbrekku á Skógarströnd í Snæ- fellsnessýslu. 14. Gróa Brynjólfsson, ekkja Skafta Brynjólfssonar (d. 1914), að heimili sínu í Winnipeg, Man. Fædd í Húnavatnssýslu 12. apríl 1864. Foreídrar: Sigurður J. Jóhannesson og Guðrún Guðmundsdóttir. Fluttist hingað til lands 1873. 14. Úlöf Fjeldsted, ekkja Árna Fjeldsted, að heimili dóttur sinnar i Winnipeg, Man. Frá Vatnabúðum i Eyrar- sveit í Snæfellsnessýslu, fædd 11. ágúst 1862. Þau hjónin komu til Vesturheims 1906. 14. Ólöf Jónsdóttir Johnson, að heimili sínu í Langruth, Man. Fædd 25. desember 1863 á Ytra Krossnesi í Skagafjarðarsýslu. Foreldrar: Jón Jónsson og Ólöf Þorsteinsdóttir. Fluttist vestur um haf kringum 1890. 15. Thor Goodman, til heimilis í Selkirk, Man., lézt í bíl- slysi norður af bænum. 15. Bjarni Marteinsson, bróðir séra Rúnólfs Marteinsson, að heimili sínu í Hnausa-bygð í Nýja-islandi. Man. Fæddur að Stafafelli í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu 29. júní 1863. Foreldrar: Marteinn Jónsson og Guðrún Jónsdóttir. Kom vestur um haf 1883; nam land í Fljótsbygð í Nýja-íslandi 1894. 16. Agnes Jónsdóttir, að heimili tengdasonar síns og dóttur, Sveins og Bjargar Björnson, í Seattle, Wash. Fædd 6. nóv. 1858 að Ásbrandsstöðum í Vopnafirði. Foreldrar Jón Jónsson og Björg Guðlaugsdóttir. Flutt- ist til Ameríku fyrir 52 árum síðan. 17. Jóhanna (Josie) Bergman Sigurdson, kona Sigurðar P. Sigurdson prentara, á King Edward s.iúkrahúsinu í Winnipeg. Fædd 24. sept. 1904, dóttir Björns og Ragn- heiðar Bergman, er lengi bjuggu í grend við Árborg, Man. 19. Hólmfred Olson, á heimili sínu að Gimli, Man. Fædd- ur þar 24. apríl 1886 og 61 þar nær allan aldur sinn. Foreldrar hans voru landnámshjónin Gottskálk Sig- fússon og Hólmfríður Jónatansdóttir, sem komu til Gimli með "stór'a hópnum" 1876.