112 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: 20. Steinunn Ólafsdóttir Jósepsson, kona Magnúsar Jó- sepssonar, að heimili sínu í Blaine, Wash., 87 ára aö aldri. Hafa þau hjón átt þar heima í 36 ár. 21. Ingibjörg Sveinsdóttir Magnússon, kona Magnúsar Magnússonar útgerðarmanns að Eyjólfsstöðum við Hnausa, Man., 66 ára að aldri. Ættuð úr Borgarfirði og mun hafa komið til Vesturheims 1895. 22. Stefanía Magnúsdóttir Benson, að heimili sínu í Sel- kirk, Man. Fædd að Áslaugarstöðum í Vopnafirði 9. sept. 1849. Foreldrar: Magnús Rafnsson og Katrín Sveinsdóttir. Fluttist vestur um haf 1893 með manni sínum, Sigbirni Ásbjörnssyni Benson (d. 1921). 23. Guðjón Jockson, að heimili sínu í Grand Forks, N. Dak., á sjötugsaldri. Fasddur á Hámundarstöðum í Vopnafirði. Foreldrar Guðvaldi Jónsson (Jackson) og Kristín Þorgrímsdóttir. Fluttist ungur vestur um haf með foreldrum sínum árið 1888. 23. Stefán (Árnason) Anderson, að heimili sinu við Otto, Man. Fæddur að Mið-Hvammi í Suður-Þingeyjar- sýslu 28. okt. 1883. Foreldrar: Árni Kristjánsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir. Kom til Ameríku 1903. 28. Guðrún Klemensdóttir Backmann, að heimili tengda- sonar síns og dóttur, John Stefánsson og konu hans, í Blaine, Wash. Fædd 16. jan. 1868, ættuð úr Reykja- vík. Maður hennar, Árni Erlendsson Backmann, lézt 1923. 31. Þórdís Vigfúsdóttir ísdal, kona Þ. G. isdal að White Rock, B. C, á hjúkrunarhúsi (Nursing Home) í Van- couver, B. C. Fædd 27. júlí 1867 á Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Foreldrar: Vigfús Sigurðsson og Þórey Bjarnadóttir. Fluttist vestur um haf 1903. 31. Sigurður Vilhjálmsson skósmiður, að heimili sínu í Winnipeg, Man. Fæddur 2. júlí 1856 á Mýrnesi í Eiðaþinghá í Fljótsdalshéraði í Norður-Múlasýslu. Foreldrar: Vilhjálmur Marteinsson og Ragnhildur Pálsdóttir. 1 okt. Magnús Jónsson, í Winnipeg, Man. Ættaður frá Hjarðarfelli, 61 árs að aldri. NÓVEMBER 1940. 4. Grímur Laxdal, fyrrum verzlunarstjóri á Vopnafirði, bróðir Jóns Laxdal tónskálds, að heimili téngdasonar síns og dóttur, dr. Sveins E. Björnsson og Marju konu hans, í Arborg, Man. Grímur, er var 76 ára að aldri, var ættaður af Akureyri og kom vestur um haf 1907.