ALMANAK 1941 113 . 6. Sesselja Magnúsdóttir Pálsson, á heimili Halldórs Björnson og konu hans að Mountain, N. Dak. Fædd 1. júní 1849 á Fellsenda í Miðdölum í Dalasýslu. For- eldrar: Magnús Sigurðsson og Guðríður Guðmunds- dóttir. Fluttist til Ameríku 1888. 15. Arni Jónsson, að heimili sínu í Langruth, Man. Fædd- ur 21. marz 1863 að Bygðarholti í Lóni í Austur-Skafta- fellssýslu. Foreldrar: Jón Jónsson hreppstjóri og Ragnhildur Gísladóttir. Kom til Vesturheims 1890. 17. Ingibjörg Sigurðsson, kona Guðmundar Sigurðsson að Lundar, Man., á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg, Man., um sjötugt. Ættuð úr Hraunhreppi í Mýrasýslu. 22. Guðmundur Björnsson frá Riverton, Man., á sjúkra- húsinu að Gimli, Man. 22. Margrét Jónsdóttir, að heimili sínu í grend við Bald- ur, Man. Fædd að Hróðnýjarstöðum í Laxárdal í Dalasýslu 26. apríl 1857. Foreldrar: Jón Jónsson og Margrét Einarsdóttir. Kom til Ameríku 1883. Maður hennar, Markús Jónsson frá Spákelsstöðum i Laxár- dal, lifir hana. 22. Ingimundur Johnson, að heimili sonar síns og tengda- dóttur, Halldórs Johnson og konu hans, í Brown, Man. Fæddur í Steinadal í Strandasýslu 20. des. 1860. For- eldrar: Jón Björnsson og Ólina kona hans. Fluttist til Vesturheims 1885. 23. Helgi Jónasson, að heimili sínu í Norwood, Man., fullra 75 ára að aldri. Fæddur í Reykjavík, sonur Jónasar Helgasonar dómkirkju-organista. Hafði átt heima í Winnipeg síðan hann fluttist hingað til lands fyrir 55 árum síðan. iiXS> .@>-n>"