Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Afturelding

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Afturelding

						AFTURELDING

Sá finnur, sem leitar.

Eftir   Carl   Andersson.

Undirritaður ætlar að segja frá atviki, sem gerð-

ist á einum stað, þar sem ég var að prédika. Það

sannar, hversu raunverulegt Guðs orð er fyrir alla

þá, sem vilja leita Guðs í einlægni. Það eru til á

þessum dögum um alla jörðina hópar af blessuðum

Guðs börnum, sem hafa reynt fyrirheit Guðs og

fundið kraft þeirra.

„Því að svo mörg sem fyrirheit Guðs eru, í hon-

um er staðfesting þeirra með jái, þess vegna skul-

um vér og fyrir hann segja amen Guði til dýrð-

ar". 2. Kor. 1, 20.

„Þar eð hans guðdómlegi máttur hefir veitt oss

allt, sem heyrir til lífs og guðrækni með þekking-

unni á honum, sem kallaði oss með sinni eigin dýrð

og dáð, og með því hefir hann veitt oss hin dýr-

mætu og háleitu fyrirheit, til þess að þér fyrir þau

skylduð verða hluttakandi í guðlegu eðli, er þér

hafið komizt undan girndaspillingunni, sem er í

heiminum". 2. Pét. 1, 3—4.

Fyrir mörgum árum, er ég hélt samkomur í

borginni N., gerðist það, sem ég ætla hér að segja

frá. Á einni samkomu á sunnudaginn, tók ég eftir

sterklegum, ungum manni, sem ásamt konu sinni

var viðstaddur. Eftir samkomuna hraðaði ég mér

niður til hans og sagði: „Eruð þér endurfæddur?"

„Nei", sagði hann ákveðið. Ég hvatti hann þá til

að leita Jesú, en hann sagði: „Ekki núna, heldur

á fimmtudaginn". — Samkomur yoru nefnilega

auglýstar fyrir alla vikuna. — Ég spurði þá aftur:

„Hafið þér þá tryggingu fyrir því, að þér lifið til

fimmtudags?" Hann hafði það ekki, en tók ábyrgð-

ina á sig sjálfur og hélt, að hann gæti komið á hin-

um ákveðna degi. Ég kenndi mjög til vegna hins

unga manns og bað til Guðs fyrir honum daglega.

Ég var þess fullviss, að eitthvað undursamlegt

mundi koma fyrir á hinum tiltekna degi, svo að ég

beið fimmtudagsins með eftirvæntingu. Bænaefn-

ið mitt var ekki birt á nokkurri samkomu fyrr en

á hinum tiltekna degi. Þegar ég sá manninn í byrj-

un samkomunnar ásamt konu sinni og fjögra

ára gömlum dreng, hrópaði hjarta matt: „Halle-

lúja! Sigur fyrir Jesú!"

Hér var líka margt fólk samankomið í ýmsu

sálarástandi. — Það ríður á, að fara rétt með orð

sannleikans. Aðeins Guð, sem þekkir öll hjörtu,

getur hjálpað sínum vottum í þessu efni.

Sumir sitja þar fullir úlfúðar og rétta út fálm-

arana eins og snigillinn, til þess að finna að einu

og öðru. Ef maður segir sannleiksorð, sem þeir

vilja ekki heyra eða hlýða, þá hnykkja þeir á með

höfðinu og hvísla hver að öðrum: „Dæmandi pré-

dikun!" Og stundum fara þeir út; aðrir eiga á móti

samband við himininn og eru fylltir straumi Heil-

ags Anda, svo að þeir vegsama Drottinn og segja:

„Dýrð sé Guði", og næstum lyftast upp úr sætum

sínum. Þegar maður talar, þá er bezt að horfa á

þá, því þar er „bænareldurinn", sem gefur kraft

vitnisburðinum, og þar er „himna-símasamband",

sem dregur Guðs blessun niður. Þar eru líka nokkr-

ir, sem hafa fallið frá. Þeir hafa um tíma fagnað

í Drottni, en nú er það ekki annað en sorgleg end-

urminning. Sumir þeirra hafa innilega löngun eft-

ir að koma heim til föðurhúsanna aftur. Svo eru

þar börn á ýmsum aldri, og þeim megum við ekki

gleyma, því hjá þeim er góður jarðvegur fyrir

orðið. Ég get aldrei gleymt því, sem tíu ára göm-

ul stúlka sagði við eldra fólkið eftir eina sam-

komuna: „Andersson talar við alla, nema mig".

Hún þráði frelsið svo mjög, en hafði ekki djörf-

ung til að segja fráþví. En nokkru seinna kom hún

eftir samkomu og staðnæmdist lengst frammi í

salnum. Augu hennar voru full af tárum, og leit

til mín bænaraugum. Hún féll strax á kné og tók

á móti Jesú. Að endingu viljum við nefna þá, sem

koma sér til dægrastyttingar og vilja sitja meðal

fólksfjöldans,  heyra ræður, söng,  hljóðfæraslátt

og athuga, hverjir eru á samkomunni og hvernig

þeir eru klæddir o. s. frv. Innan um fjöldann eru

ýmsir, sem eru meira eða minna ósvífnir og f jand-

samlegir gegn Guði, orði hans og börnum. Stund-

um sýna þeir það jafnframt í verki og framkomu,

að þeir eru fullir órósemi, og að þeim líður illa í

þjónustu Satans. Slíka menn hefi ég góða von um,

því að þeir verða, máske, fyrstir til að koma til

Drottins. Ég hefi sjálfur verið meðal spottaranna.

Einu sinni sagði prédikari við mig: „Þú, sem situr

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8