sem vill muna eftir pví, að Jesús er heima hjá honuin, hann veröur glaður, og pá skín heill mikil á pví heimili, pví drengurinn vill gefa Jesú pað bezta. Hann vill gefa Jesú hjarta sitt, foreldrum sínum hlýðni sína, og öllum kurteisi og kærleika. Og pó pú getir ekki komið á fund nú um tíma, pá gjörir pað ekki svo mikið til, ef pú manst eptir pví, að Jesús er líka heima hjá pjer, og ef pú vilt haga pjer eins og pú værir á fundi, bæði heima og úti' á götunni. Taktu pví á móti Jesú með gleði og talaðu við hann í bæninni og lestu Guðs orð, ef pú getur lesið, og biddu einhvern að lesa fyrir pig, ef pú getur pað ekki sjálfur. Guð blessi pig og varðveiti pig, og láti sína ásjónu lýsa yfir pig og sje pjer náðugur, og upplypti sínu augliti yfir pig og gefi pjer frið. Amen. Frá Apeninafjöllum til Andesfjalla. Fyrir mörgum árum síðan ferðaðist 13 ára drengur, son- ur verkamanns, frá Genua til Ameríku aleinn til pess að leita að móður sinni. Tveim árum áður hafði hún farið til Buenos Aires, höf- uðborgarinnar í lýðveldinu Argentína, til pess að ganga par í vist á einhverju ríku heimili og vinna sjer inn á stuttum tíma nægilegt til að koma heimili sínu á rjettan kjöl' aptur, pví fyrir allra handa óhöpp hafði fjölskyldan lent í fátækt og skuldir. I3að eru margar hugrakkar kon- ur, sem takast slíka ferð á hendur í pessu augnamiði, og vegna hins háa kaupgjalds geta eptir nokkur ár snúiö heim aptur með nokkur púsund »lírur« í vasanum. Pessi fátæka móðir grjet mörgum fögrum tárum, er hún kvaddi syni sína annan 18 ára og hinn 11; en hún lagði samt