Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Gaman og alvara

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Gaman og alvara

						þá er það það sama. Hundrað er

eiginlega ekki annað en margföld-

un á núllum, og það eru líklega

þau, sem hafa vilt þá alla stærð-

fræðingana okkar, sem segja að

öldin byrji ekki fyr en 1901. Það

er ljóta vitleysan.

C. Já, vitlaust er það, en eig-

inlega er nú skekkjan ekki svo

mikil, það munar að eins einu ári

á 18 öldum. Tíminn flýgur hart,svo

það er varla að undra þó almenning-

ur geti ekki fylgt svo nákvæmlega

með honum. En nú er eg búinn

að laga þessa skekkju með því

að gefa út þá fyrirskipan um all-

an heim, að öldin skuli verabyrj-

uð, og árið 1900 sé I. ár tuttug-

ustu aldarinnar.

M. Tuttugustu aldarinnar? Eg

er nú hræddur um að skekkjan

sé meiri en eitt ár hjá þessum

blessuðu sprenglærðu stærðfræð-

ingum, eftir því sem eg get kom-

ist næst. Mér finst að það skakki

um heila öld og' eitt ár, og að

þessir vitringar hafi því orðið á

undan tímanum. Við segjum ip

hundruð núna! — Er það þá ekki

jp. Öldin sem er að byrja.

C Það hef eg nú ekki nákvæm-

lega athugað, en það skal eg vera

búinn að gera fyrir næstu aldamót

Sótarinn og bakarinn,

Hafið þið heyrt söguna um sót-

arann og bakarann. — Eg sel

hana   ekki   dýrara   en eg keypti

hana, — en svona var hún sögð

mér: — Það var einhvern tíma

hérna í haust, að þeir mætt-

ust við götuhorn bakarinn og

sótarinn, báðir náttúrlega á ein-

kennisbúningi, annar hvítur og

hinn svartur. Sótarinn kom að

sunnan, en bakarinn austanað

og báðir voru þeir að flýta sér.

En af því þeir komu báðir jafn

snemma fyrir hornið, rákust þeir

nokkuð óþyrrhilega á, svo sótar-

arinn varð hvítur en bakarinn

svartur á annari hliðinni. Báðir

urðu þeir afarreiðir og kærðu hvor

annan; komu þeir síðan fyrir rétt

og sóttu mál sín af kappi, en þar

bar þó sótarinn lægra hlut, því

hinn réttsýni dómari úrskurðaði

hann sekan, með því að bakarinn

gæti sýnt það svart á hvítu að

sér hefði verið óréttur gjör. Þess-

um úrskurði hefur sótarinn ekki

áfrýað, og má því sjá, að hann hef-

ur verið réttur.

Er Evrópa of mannmörg?

Eittnafnkunnugt kímniskáldhefur

svarað þessari spurningu, sem nú

skal greina:

Það er hreinasti misskilningur,

hjá mönnum, að Evrópa sé orðin

of mannmörg, því ef svo væri,

þá væru skemtihúsin ekki næstum

því tóm. Komi menn í fatabúðir

er auðsæ vöntun á búkum og

háusum handa öllum þeim ógrynni

af fötum og höttum sem þar eru.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4