21 tímum, er hin miklu auðsöfn einstakra manna hafa myndast, og þeir sem þeim ráða hafa slegið sér saman í félög (hringa") sér til eflingar, er erfitt rönd við henni að reisa, og stjórnir ríkjanna henni háðar í mörgu. Hin stóru heimsriki eru í raun og varu nokkurskonar stór- kaupmenn. Þau hafa meira og minna af heiminum undir sem hjáleigur, til að auðga heimaríkið af viðskift- unum þar. Og í hinum miklu svonefndu menningar- löndum, svo sem Englandi o. fl., eru þeir menn, sem mestu ráða, í raun og veru kaupmenn, flestir ríkir, en meginþorri þjóðarinnar öreigar, sem þræla fyrir sultar- brauði; því kaupmenskan hirðir meginhluta verkkaups þeirra eins og hjá okkur á sér stað, þó auðsöfnin enn sé smærri hjá ómttgum vorum, af því hér er alt í smærra stíl. Kaupmenskan hleður undir nokkra menn í þjóðfélaginu til að gera þá auðuga og volduga, en drepur jafnframt fjölda fólksins niður í eymd og örbyrgð. Aðal-undirrót hins mikla heimsófriðar, sem nú geysar, með öllum þeim miklu börmungum og eyðileggingu er honum fylgir, og sem teygir afleiðingar-angana inn á hvert heimili als menningarheimsins með áhrifum á verð- lag og fleira er kaupmenska, sem birtist í yfirdrotn- unargræðgi stórþjóðanna, eða ráðandi manna hjá þeim, yfir sem mestu af heiminum, til að hafa sem tíðtækast vald á verzluninni. Viðskiftasamvinna, sem á erlendu (alheims-) máli er nefnd kooperation" (= kóperasión), er algerlega gagnstæð kaupmensku". Framleiðandi vöru, sem selj- ast á, fær hana ekki kaupmanni fyrir það verð, er hon- um þóknast að gefa" fyrir hana, heldur hefur allan veg og vanda af henni, unz hún er komin í hendur þeim, sem þarf að kaupa hana til neyzlu eða eigin notkunar.