28 sem náð hafa skilningi á og fengið æfing í samvinnufélags- skap í viðskiftum, fara að beita allri hugsun og starfi sínu að því, að vera vammlausir í þessu, og það æfir hina betri krafta sálarlífsins, verður jafnframt hollur skóli fyrir börnin, og hefur þannig hin víðtækustu áhrif til mannkostaeflingar. Það segir sig sjálft, að fækkun milliliðanna eða út- rýming þeirra, ómegðarléttirinn, hefur einnig stórfeld áhrif á tekjuauka af framleiðslu-atvinnu. Bændur verða þá færir um að auka framleiðsluna, rækta og byggja land- ið, geta borgað verkamönnum hærra kaup, og lifað áhyggjuminna og sælla lifi. Félögin eignast sjálf vöru- hús sín og áhöld, er þurfa til að reka verzlunina, í staS þess aS áður lögSu bændurnir fram féS handa öSrum til aS byggja hús fyrir sjálfa sig. Og síSast en ekki sízt: félagsmenw. læra og æfast í að vera í félagi, vinna saman í bróðerni að sinni og annara velfarnái), og hlut- takan í reglubundnum félagsskap æfir alla í að taka þátt í stjórn og eftirliti félagsmálefnanna, bera traust til sínna beztu manna, og Iáta að stjórn þeirra, er þeir sjálfir hafa valið til þess, og sýna sig traustsins verSa. En það kappkosta allir félagsmenn að gera; því glötun trausts að sjálfráðu í slíkum félagsskap er sama sem sjálfsmorS. Sá, sem fyrir því verður, er ekki lengur til sem maður. Kaupmenskan leiðir til sálarsýkingar og örbyrgðar hjá fjölda fólksins, en samvinnufélagsskapurinn eflir sálarheilbrigði og almenna velmegun.