Sl félag Suðurlands o. s. trv- Samband íslenzkra sarn* vinnufélaga" er einnig stofnað og heldur úti tímariti, er margt gott hefur birzt í. En i sambandið eru ekki nærri öll samvinnufélög landsins gengin enn. Það getur- með tímanum lagast. Meðal sjávaraflamanna og i kaupstöðunum berlítið á viðleitni til slíks félagsskapar enn. Er þó fiskurinn sú af framleiðsluvörum landsins, sem einna mest munar um. Sjómennirnir virðast vera rólegir með að lands- stjórnin skipi matsmeim fyrir vörur þeirra, er landssjóð- ur borgar launin, og kaupmenn hirði síðan rjómann af erfiði þeirra. Þeir, sem fiskinn draga úr sjónum, hafa enn litlar beinar hvatir til að vanda vinnu sína; eru flestir kaupamenn hjá þeim sem skipin gera út, í stað þess að þeir ættu sjálhr að eiga skipin og allan aflann, hirða hann eða láta hirða, verzla með hann og kaupa allar sínar nauðsynjar, alt í samvinnufélagsskap. Þá mundi atvinnan verða þeim drýgri. Máske hið ís- lenzka fiskifélag" fari að sinna þessu? Fyrsta samvinnufélagið stofnuðu nokkrir fátækir verkamenn í kaupstað eða borg (á Englandi), til að kaupa nauðsynjar heimila sinna. Og hvergi virðist hæg- ara að koma þeim við en í kaupstöðum, þar sem félags- menn búa allir á litlum bletti. En i kaupstöðunum hér á landi ber enn litið á vakning i þá átt. Eða hafi slíkt verið reynt, hefur þar, ekki síður en i sveitunum, alt strandað á fornu skerjunum, hinum gamla Adam" sem ekki kann við sig í Paradís".