íngi lægra en það hefir verið þessi árin, sem Sf. Sl. hefur starfað1). Sala nautgripa var á þeim tíma engu glæsilegri. Verðið var afar-óábyggilegt og misjafnt, oft- ast miög lágt; vóru stundum með öllu óseljanlegir. Þar, sem fé var keypt til að flytja afurðir þess úr landi, var meðferð þeirra hinn versta, og vörurnar þar af leiðandi í óáliti og litlu gildi; seldust því lágu verði. Kaupmenn gerðu ekkert til að bæta úr þessu. Var sumt af vörunum ekki hirt og talið einkis virði, svo sem garnirnar. En siðan Sf. Sl. tók til starfa hefur sú vara ein borgað laun forstiórans og stjórnarkostnað félagsins, stundum meira. Stofnun Sf. Sl. var undirbúin af 8 fulltrúum úr 6 sýslum, á fundi í Reykjavík, 26.30. marz 1906. Árið eftir var félagið stofnað, og tók til starfa þá um haustiS (1907), í sláturhúsinu í Rvík, er bygt hafði verið um sumarið. Næsta ár var einnig bygt sláturhús í Borgar- nesi. Hafa byggingar þessar á báðum stöðum síðan verið auknar og endurbættar. Hefur félagið nú eignast í byggingarlóðum, húsum, bryggjum, vélum, áhöldum o. þvíl., eftir tilkostnaði (í árslok 1914) kr. 170,434,79 Varasjóð...... 13,022,39 Eimskipafél. hluti . . . 2,000,00 = 185,457,18 1) Bóndi úr Borgarfirði hefur sagt mér, að þá hafi hann i tvo daga verið að leitast við að selja hóp af 23 vetra sauð- um frá einni beztu sauðjörð þar, boðið þa á 10 11 kr. en eng- inn vildi kaupa. Loks lánaði hann kaupmanni sauðina fyrir þetta verð. Snmskonar sauðir frá sama bæ lögðu signúíhaust (1915) é 80-40 kr. i slaturfélagínu.