37 7. gr. Skuldbundinn er hver félagsmaður til að skifta við sláturhús félagsins með alt sauðfé og naut- gripi, er hann selur til slátrunar, og þangað er unt að koma. Undanþegnir ákvæði þessu eru þó félagsmenn, er búa austan Jökulsár á Sólheimasandi, að því er snertir mylkar ær, fráfærð lömb og fullorðna hrúta, sé það fé ekki selt til Reykjavíkur. Sjúkar skepnur má eigi flytja til sláturhúsa félagsins. Félagsmönnum er heimilt að borga verkamönnum sínum með sláturfé. Sala sláturfénaðar til annara félagsmanna er heimil. Félagsmaður, er flytur vist- eða búferlum úr félags- svæðinu, er laus við skyldu þá, að skifta við sláturhús félagsins. Brot gegn ákvæðum greinar þessarar, fyrstu máls- grein, varða sektum, 5 kr. fyrir sauðkind hverja og 25 krónum fyrir nautgrip hvern, er félagsmaður selur utan- félagsmanni, sem kaupir fénað til slátrunar í Reykjavík, eða sem verzlar með sláturfénað eða afurðir hans". 9. gr. Deildarstjóri hefir á hendi stjórn og fram- kvæmd sláturfélagsmálefna í deild sinní: boðar til funda og stjórnar þeim, gerir áætlanir um tölu sauðfjár, er deildin muni selja haust hvert, og nautgripa (og sauð- fjár) á öðrum tímum árs, ef unt er, og sendir þær til forstjóra fyrir þann líma, er hann til tekur, annast um fjárrekstur o. fl., samkvæmt nánari ákvörðunum félags- stjórnarinnar". 21. gr. Fénaðartlutningi til sláturhúsanna og rekstra- merkjum skal hagað eftir fyrirskipunum, er forstjóri gefur út. (Forstöðumaður slátrunarinnar i Borgarnesi annast þetta þar í umboði forstjóra)". Pessar greinar fela i sér skyldur félagsmanna, sem