skapnum, óg á því hlyti að grðasl stórfé drtegá i framtíðinni fyrir landbúendur á félagssvæðinu. Framleiðendur búfénaðar, búendur og búlausir! Ger- ist allir sláturfélagsmenn og verið félagsskapnum trúir! Þá liður ekki á löngu, að þér getið tekið alla verzlun ykkar í eigin hendur, einnig með aðrar söluvörur og aðkeyptu vörurnar. Því öll samvinnufélagsverzlun er sama lögmáli háð, og þroskun vinst með tíma og æfing. Viðreisnarvon landbúnaðarins, viðhald sveita- búskaparins, bygð landsins er að miklu leyti komið undir því, að viðskiftasamvinnufélagsskapurinn verði al- mennur og öflugur í landinu. Að styðja hann og eíla (og jafnframt bæta samgöngur á landi og sjó, til að geta sem bezt notið hans), er landvamarskylda vor Islendinga, eini sýnilegi vegurinn til þess, að þjóðin geti lifað. Athugasemd. Höfundur ritg. þessarar væntir þess, að góðir fé- lagsmenn styggist eigi við, þótt hann láti þung orð falla um fylgisleysi og ótrygð í félagsskapnum, og að þeir, sem það kunna að finna i fari sínu, bæti ráð sitt; og fer þá alt vel. Þótt nokkuð hart sé að orði kveðið um kaup- menskuna, er engum einstökum manni álasað, sem þá atvinnu stundar á heiðarlegan hátt. Er eðlilegt, að ýms- ir vilji nota sjer, meðan fólkið er svo grunnhyggið og samtakalaust, og leyfir eða líður hverjum sem vill að rýja sig og flá, þó það hafi í hendi sjer ráðin við því samvinnufélagsskapinn , ef það vill.