II. Stjórn og framkvæmdir Sf. Sl. 1. Úr fundagerðum félagsstjórnarinnar. Til þess að gefa félagsmönnum hugmynd um, hversu háttað hefur verið gerðum félagsstjórnarinnar, skal hér getið helztu framkvæmda-atriða úr fundagerð- unum. Auðvitað hafa mörg fleiri mal komið til álita og umræðu, en hér verður getið, rúmsins vegna, og flest málin þurft nokkurn tíma að taka til skoðunar og umræðu, áður en að niðurstöðu kæmi. En hennar er hér að eins getið i fám orðum. Aðalfundir hafa venju- lega staðið yfir á 3. dag, og þurft að halda vel á tíma. 1. fundur, 15. april 1907. Var þá: Ágúst Helga- son kosinn formaður og fundarstjóri (hann hefir jafnan 8ið an verið endurkosinn til þess starfa). I framkvæmdanefnd með forstjóra voru kosnir: Björn Bjarnarson (endurkos- inn til þess tið siðan, og skrifari á fundunum frá upphafi fó- lagsins) og Páll Stefánsson. Endurskoðarar kosnir: Eggert Benediktsson og Ólafur Ólafsson báðið endurkosn- ir til þeas tið siðan). Ráðinn slátrari: Tómas Tóm- asson, Gert útboð til byggingar sláturhússins í Reykja-