61 komin upþ, og boykisverkstæðið tekið til starfa, býr til tunnur handa félaginu). Að raflýsa húsiii í Rvík. Það mál falið frkvn. til undirbúnings. (Nú er þar gaslýsing, en búist við að hitt geti orðið hentugra og jafnvel ódýrara). Nauðsyn- legar umbætur í Borgarnesi skyldu gerðar. Eins og fyr innleyst stofnbréf dánarbúa, þurfamanna og þeirra er burt eru fluttir af félagssvæðinu, en fjórum, er öðru- vísi stóð á, synjað um innlausn, enda borgar félagið öll- um fulla vexti, nú 6°/0. Ákv. að borga ekki útsvarið í Rvik, 1300 kr., nema eftir dómi. Út af tillögu (frá P. Þ.), um stofnun húsaviðhaldssjóðs i félaginu, var skipuð nefnd (B. B., V. G., P. Þ.) til að endurskoða lögin og jafn- framt athuga þessa tillögu. Ákv. að gefa út rit með skýrzlu um starfsemi félagsins hingað til, ágrip af reikn- ingum þess og ritgerð til fræðslu og vakningar um samvinnufélagsskap, eínkum með tilliti til Sf. Sl..... Umsjón útgáfunnar falin ritara félagsins, B. B. í Grafar- holti". Samþ. tillögur deildastjórafunda um að færa daglaun stjórnar og endurskoðara upp, (úr 4 kr., sem verið hefur) í 6 kr., þá daga, sem eyða verður i þarfir fé- lagsins. Hækkuð laun fastra starfsmanna lítið eitt þetta árið, vegna dýrtíðar. Forstöðumaðurinn í Bn. sjái um að slátrað verði fé félagsmanna þar, sem kemur eftir aðal-sláturtíð. Tekinn 1000 kr. hlutur i Eimsk. ísl. (Þessi .fundur heyrir að visu til 9. starfsári félaðsins, en útg. þólti þó rétt að taka hann hér með, félagsmönnum til fróðleiks). Á öllum fundum vóru fleiri smá mál til meðferð- ar, sem sleppa verður í þessum útdrætti.