63 0. fl. endurbætur á lóðinni, eldvarnarskáp steinsteyptan, til geymslu peninga, bóka og sk}ala, m. fl. umbótum, sem nauðsyn var á, áhalda-aukning, umboðsmenskan ytra, úttekt sláturhússins (eftir árs reynslu), niðurröðun rekstra og ákvörðun verðlags (á hverju hausti\. Fjár- málin vóru þá erfið og tafsöm, eins og þessar funda- gerðir sýna: 4. ágúst. ... fann B. B. ráðherra að máli til að fá vitneskju um hvort unt væri að viðlagasjóður Isl. gæti, ef þörf krefði, hlaupið undir bagga með félaginu með lán til reksturs í haust .... Ekkert ákveðið loforð gefið". 26. okt. Ný tilraun gerð til að fá reksturs- peninga hjá bönkunum. er að lokum tókst á þann hátt að Landsbankinn ábyrgist greiðslu fjársins til Isl. banka, er Iánar peningana. Ábyrgðir deildanna fær Landsbank- inn að tryggingu, ásamt [nöfnum frkvnefndarmanna. Þannig fást 35,000 kr. til febr. loka". 14. desember. Eftir ósk forstjóra mætti B. B. í dag, útaf því, að 5000 kr. víxill féll til útborgunar, en óvíst um að greiddur yrði; en úr því rættist, af því símskeyti í dag skýrði frá innborgun Larsens í Landmandsbanken í Khöfn. Fékst því seld ávísun á Larsen í ísl. banka (ekki í Landsb.!) og var víxillinn þar með greiddur". Á síðasta fundi, 28. des., krafðist frkvn. auka-stjórnarfundar. Jrið 1909 eru 18 fundir bókaðir. Þar er þess meðal annars getið, ab 2. marz fengu þeir B. B. og H. Th., upp á sín nöfn ein, 6000 kr. víxillán hjá Landsb., til að geta lokið skuldinni hjá ísl. banka. Um vorið varð enn að leita láns til að geta borgað eftirstöðvar fjárverðs. Tókst það um stuttann tíma gegn ábyrgðum og 2. veðrétti í eign i'élagsins. Stöfuðu þessir peninga-