76 fundi að Þjórsártúni, 28. janúar 1907, og lagafrumvarp fulltrúafundarins samþykt sem lög fyrir félagið. Var þá hluttakan ekki rífiegri en svo, að 565 menn höfðu lofað þátttöku, og 11.120 kr. stofnfé. Þurfti því áræði og bjartsýni til að ráðast í að stofna félagið, og byrja á þeim nndirbúningsframkvæmdum, sem óhjákvæmileg- ar vóru. Um hluttöku héraðanna vestan Hvalfjarðar var þá lítil vissa fengin, og engin um Mýrasýslu fyr en eftir ferð B. B. um hana veturinn 19071908 er undirbjó félagshluttöku Mýrasýslu og stofnun útbúsins i Borgarnesi. Var haldinn fundur þar í hverri sveit, og vóru þeir vel sóttir. Síðasti fundurinn var í Borgar- nesi, og kom þar formaður fél. og forstjóri. Eftir þann fund vóru þó litlar horfur á að takast mundi að koma upp sláturhúsinu í Bn. það árið, þótt hentug húslóð væri fengin og Mýrasýslubúum væri áhugamál að starf- semin gæti byrjað næsta haust, og stofnfjárloforð rifleg þar. Fé skorti til framkvæmdanna, þar til stofnféð yrði innborgað; vonlaust um að fá meira lánsfé en þurfti til viðbótar stofnfje syðra, svo komiS yrði upp sláturhúsinu í Rvik. Var þá ekki annað sýnt en að dragast yrði öll félagsskaparframkvæmd þar, þrátt fyrir álitlegar undirtektir héraðsbúa, og þótti ýmsum fundarmönnum það miður farið, óttuðust að áhuginn kynni að dofna, ef ekki væri tekið til smíða meðan járnið var heitt". Morguninn eftir fundinn fór B. B. ekki suður með Faxa- flóabátnum, en slóst í för með nokkrum fundarmönnum landveg á leið upp úr Borgarnesi. Urðu þeir 9 saman. Samdist svo með þessum mönnum, að þeir létu þegar um veturinn byrja á að draga efni að og byggja grunn sláturhússins í Bn.; gengu þeir allir í ábyrgð fyrir kostn- aðinqm og réðu mann til að anuast verkið. Var svo