Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Hamar

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Hamar

						H A M A R

H A M A R.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður:

Morten  Ottesen.

Afgreiðsla er í Bárunni fyrst

um sinn og er opin frá ÍO1/^ f.

m. til 8 e. m. Kemur út einu

sinni í viku og oftar ef þörf

gerist. Verð kr. 10,00 um árið.

Útsölumenn fá mikil ómaks-

laun. Auglýsingum í blaðið sé

skilað annaðhvort á afgreiðsl-

una eða í prentsmiðjuna Acta

daginn áður en blaðið kemur

út.

Fasteignabanki

í Reykjavík.

Ef höfuðstaðarbúar fengju

óskastund, þá er lítill vafi á

því, að flestir þeirra myndu

segja: „Gefið mér sæmttegt

húsnæði".

J?að er áreiðanlega ekki gott

að ásaka Reykvíkinga fyrir

það, þótt þeir notuðu óska-

stundina á þennan hátt. Hér

eru þúsunrir manna, sem telja

má húsviltar, eða sem búa í svo

vondum húsum, að ekki er

mönnum bjóðandi. Og altaf

versnar með hverju árinu.

Eg bið „Hamar" fyrir þá orð-

sending frá mér, sem einum af

kjósendum þessa bæjar, að þá

er eg vissi að D-listinn ætlaði

að gera húsamálið að einu af

sínum allra mestu áhugamál-

um, þá afréð eg að láta mitt at-

kvæði falla til hans.

Eg hefi verið á fundum hjá

öllum flokkunum. Sumir hafa

talað skáldlega um kjallara-

íbúðirnar. En þeir hafa aug-

sýnilega ekki haft hugmynd

um það, hvernig ætti að láta

þær hverfa. Allir vita, að fjár-

hagur ríkissjóðs er ekki svoleið-

is, að hann færi að byggja yfir

okkur, sem ekki eigum fjöl yfir

höfuðið. . En af ræðu porðar

læknis Sveinssonar sannfærð-

ist eg um að þingið og áhrif

Reykvíkinga geta þó haft mikil

áhrif. pað sem þarf að gera,

eins og læknirinn sagði, er að

útvega mönnum hér í bænum

hentug og löng lán til að byggja

íbúðir fyrir. pað þarf að taka

gömlu veðdeildina, með stein-

dauðum 3. og 4. flokks pappír-

um, og breyta henni í góðan

fasteignabanka eins og skyn-

samar manneskjur hafa þá nú

á dögum.

Mér líkaði vel ýms þau ráð,

sem hr. pórður læknir Sveins-

son benti á til að gera bréfin

auðseld, og þar með útvega

peninga í húsin. Eg veit að hér

á landi er jafnan mikið spari-

sjóðsfé til, sem standa má lengi

á vóxtum. fetta fé láta allar al-

mennilegar þjóðir fara í fast-

eignabankana, — nema við.

pingið hefir ekki kunnað nokk-

tlotiQ íslonzkor uorur!      Styfljifl íslenzkon iflnaO!

f

Komið blessaðar!

Eg vil láta yður vita það, að íslenzka sápan okkar enbetri

en sú, sem þér hafið fengið frá útlöndum.

Því ekki að nota hana fyrst og fremst?

Jú — Islenzka sápu til að þvo íslendinga er takmark vort.

Biðjið kaupmenn yðar um

íslenzku sápuna frá »Seros«.

Virðingarfyllst.

Fr. H.f. ,Seros', Reykjavík.j

Sigurjón Pétursson.

ur ráð til þess að laga þetta,

af því að þingmenn hafa ekki

skilið hvað gera átti.

Við höfuðstaðarbúar líðum

langmest fyrir hirðuleysið. það

er mest af okkar „böli". Eigum

við ekki að bjarga þessu við

sjálfir?

Við þurfum mörg, mörg ný

hús. J?að er ómögulegt að koma

þeim upp nema með góðum

fasteignabanka. Hann er eng-

inn til. pað verður að búa hann

til. En svo að það komist í

framkvæmd, þá þarf að vera á

þinginu að minsta kosti einn

maður, sem hefir vit á bæði að

þetta þarf að gerast og hvern-

ig á að gera það. Reykvíkingar

gætu meira að segja sent þrjá

menn til þess að vinna þetta

verk, þá nafnana alla. Eina

snjallræðið sem fólki hefir enn

dottið í hug móti húsnæðisleys-

inu, er að setja alla fasta hvern

í sinni kytru. En báðum líður

illa, húseiganda og leigjanda, í

því spyrðubandi. það er orsök

til endalausra illinda og haturs

milli fólks, sem ella gæti lifað

sátt og samrýmt. En það tjáir

ekki að áfella menn fyrir hatur

út af þessu. Húsleysið hefir

skapað það. Mörg ný hús í bæn-

um myndu gera ótalmargar

fjölskyldur ekki bara ánægðar,-

heldur líka betri.

Og hvað segja mæðurnar um

þessi boðorð? Vondu húsakynn-

in sverfa þó mest að þeim.

Myndu þær ekki vilja vinna

meira til en labba ofan í barna-

skóla og kjósa skynsamlega, til

þess að leggja sinn skerf fram

til að bæta úr húsaeklunni ?

Mér finst að allir þeir, sem

ekki eiga fjöl yfir höfuðið, eins

og eg, ættu að reyna þetta.

Fasteignabanka má koma upp.

Án hans verða engin hús reist,

nema yfir ríka fólkið. Hvers-

vegna eigum við hinir að vera

eilíflega húsviltir, og í ómögu-

legum húsakynnum þó?

Kjósandi.

rá oo

Kosningarréttur borgaranna

er ákveðinn í stjórnarskránni,

en framkvæmd þeirra réttinda

er komin undir kjörskrá. Nú er

það vitanlegt, að kjörskrá er

samin á alt annan veg en æski-

legt væri og krefjast mætti. 1

þetta skifti er svo farið, að

sögn, að á kjörskrá vantar

mörg eða nokkur hundruð

þeirra manna, sem rétt hafa til

þess að vera þar.

Auðvitað stafar þetta af

hirðuleysi eða því, að skráin er

eigi samin svo vandvirknislega,

sem vera ber. pað hlýtur að

vera slæmt ,,fyrirkomulag", að

hroðvirknislega samin kjörskrá

geti svift menn þeim rétti, sem

sjálf stjórnarskrá ríkisins

veitir.

Mér er ekki vel kunnugt um

það, hvernig unnið er að samn-

ing kjörskrár, en eg ætla að

það sé jafnvel gert sumstaðar

af kosningasmölum, eða þeim,

sem þarf að sjá eitthvað við.

Getur þá hver dæmt um, hvort

rétthærra ætti að vera slíkt

mannvirki, sem kjörskráin er,

eða sjálf stjórnarskráin. En er

á kjörfuhd kemur, verður

stjórnarskráin ætíð að lúta í

lægra haldi fyrir kjörskrá.

þessi aðferð er í einu orði

sagt óþolandi, og verður að

finna ráð við því, að menn séu

leiknir svo grátt, sem raun

hefir oft á orðið. það er engin

afsökun þessu fyrirkomulagi,

að þeir geti kært, sem ekki

standa á kjörskrá, en hafa rétt

til þess. Skráin er að jafnaði

samin löngu áður en kosning

fer fram, og menn hafa þá alt

annað í huga en kosningar,enda

getur fjöldi kjósenda þá verið

fjarverandi þá fáu daga, sem

skráin er til sýnis og þar með

útilokaðir frá því að kæra.

þingmannaefni D-listans

vilja vinna að því, að réttur sá,

sem stjórnarskráin veitir mönn-

um, sé eigi af þeim tekinn með

kjörskrá.

Spurningar.

þingmannaefni eru vinsam-

lega beðin að svara þeim spurn-

ingum í heyranda hljóði, sem

hér fara á eftir.

1.  Utanríkismál.

1.  Vill þingmannsefnið heita

því, að krefjast þess, ef það

kemst á þing, að einn af ráð-

herrunum sé utanríkisráð-

herra og heiti svo?

2.  Vill þingmannsefnið halda

því fast fram á þingi, að

þeir ræðismenn eða sendi-

herrar, er skipa má eftir 7.

gr. sáttmálans 3. lið, séu ís-

lenzkir embættismenn, svo

sem hinn íslenzki hluti

nefndarinnar samkv. 16. gr.

hefir haldið fram, og að

ráðunautar samkv. sama lið

séu og íslenzkir embættis-

menn, og enn að hvenær sem

sem stjórn vor sendir sendi-

mann úr landi samkv. sama

lið til þess að semja um sér-

stök íslenzk málefni, þá séu

þeir sendiherrar og hafi því

samkvæmar yfirlýsingar og

meðmæli og erindisbréf frá

utanríkisráðherra vorum ?

3.  Vill þingmannsefnið krefjast

þess, að næstu tvo áratugina

verði þessir síðastnefndu

sendiherrar um stundarsak-

ir látnir gera alla samninga

vora við önnur ríki og að því

samkvæm meðferð verði

höfð við staðfesting þeirra

samninga ?

2.  Strandvarnir.

1.  Vill þingmannsefnið krefjast

framkvæmdar á strandvarn-

arlögum alþ. 1919?

2.  Að stjórnin kaupi eða leigi

skip?

3.  Og að stjórnin leigi nú skip

af Vestmannaeyingum ?

4.  Vill það átelja stjórnina fyr-

ir að hafa ekki gert það og

jafnvel reynst þeim brigð-

mál?

3. Fjármál og atvinnumál.

1.  Vill þingmannsefnið innlend

yfirráð yfir bönkunum?

2.  Vill hann atvinnuvegum til

öryggis að bankar vorir hafi

lánstraust víðar en í einum

stað eða einu landi?

3.  Vatnamál. Vill hann neita

um öll sérleyfi, sem ríkið á

ekki meiri hluta í fyrirtæk-

inu og ræður því?

4.  Vill þingmannsefnið sérstak-

lega neita „Titan" um sér-

leyfi á pjórsá og „íslandi"

á Soginu?

5.  Vill þingmannsefnið vera á

móti járnbraut, nema ríkið

eigi hana?

Bjarni Jónsson

frá Vogi.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4