Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Hamar

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Hamar

						H A M A R

Sj ávarútvegurinn,

steinolían og

stjórnin.

þ*að er ávalt sjálfsögð skylda

hverrar stjórnar að stuðla af

alefli að því, að atvinnuvegir

landsmanna megi sem best

blómgast. Verður þetta gert

bæði með því að greiða fyrir

öflun þeirra tækja, sem at-

vinnuvegurinn þarf með, og í

annan stað: stuðla að góðum

markaði fyrirþær afurðir, sem

hann gefur af sér. þessi skylda

verður ennþá brýnni en ella í

dýrtíð og óáran, og þegar í

slíkt óefni er komið, að ein-

hverju auðfélagi hefir tekist að

ná undir sig einhverri nauð-

synjavöru til þess að einoka

hana.

Hér á landi er vélbátaútgerð-

in almennasti og öflugasti þátt-

urinn í öðrum höfuðatvinnuveg-

inum, sjávarútgerðinni. — það

er nú öllum kunnugt, hversu

gróðavænlegur þessi útvegur

getur verið, ef skaplega geng-

ur, en á hinn bóginn liggur þó

við borð, að hann sé nú með

öllu að eyðileggjast.

þessu veldur mest hið gífur-

lega verð á steinolíu, sem „hinu

„íslenska" (!) steinolíuf élagi"

hefir tekist að koma hér á.

Síðastliðið ár var verð á

steinolíu 50—60 krónum lægra

á tunnu í Noregi heldur en hér,

að því sem frá hefir verið sagt

í blöðum. þennan litla skatt

hefir vélbáta-útvegurinn orðið

að greiða ofan á alt annað.

Og gegn þessum búsifjum

hreyfði stjórnin ekki legg né

lið. Ekki skorti hana þó hvatn-

ing Alþingis, sem sífeldlega

hefir reynt að ráða bætur á

steinolíu-einokuninni, alt síðan

á Alþingi 1912, en þeirri við-

leitni hefir stjórnin undið fram

af sér.

þ*að er ekki svo vel, að ein-

stakir menn hafi fengið að út-

vega landinu olíu með betri

kjörum. Ráðstafanir stjórnar-

innar hafa aftrað því!

Síðastliðið sumar ætlaði

kaupmaður einn í Reykjavík að

fá olíufarm frá Vesturheimi,

og hefði getað selt olíuna tug-

um króna lægi^a en „einokun-

in".

En honum var synjað um

leyfið. það var reyndar ekki

beint landsstjórnin, heldur inn-

flutningsnefnd, sem synjaði

leyfisins. Stjórnin hafði — með

venjulegri forsjálni, að minsta

kosti í undirmeðvitundinni —

skipað í innflutningsnefndina

helsta manninn úr stjórn „hins

íslenska steinolíufélags"!

Olían lækkaði því ekki, held-

ur hækkaði með haustinu.

Verðlagsnefnd greip að vísu

fram í, stjórnhmi að þakkar-

lausu, en áhrif hennar og að-

staða var langtum érfiðari, er

Ætlið þér að láta leggja raf-

leiðslur í hús yðar?

Ef svo er, þá er það hyggi-

legast að tala við okkur sem

fyrst.

II

I

Vonarstræti 8.

Sími 830.

öðrum hafði verið bægt frá að

útvega landinu ódýrari olíu.

Nú hefir legið við borð, að

vélbátaútvegurinn yrði alveg

að hætta, og margir bátar hafa

orðið að taka þann kostinn.

það er fyrst nú, eftir dúk og

disk, að sú fregn kemur á loft,

að stjómin ætli að útvega farm

af olíu frá Vesturheimi. Ef olía

þessi kemur, verður það ekki

fyr en á há-vertíðinni, þegar út-

vegsmenn hafa neyðst til að

kaupa olíu annarsstaðar og ef

til vill binda sig við borð um

olíukaup alla vertíðina.

Segja má að þessi tilraun sé

skárri en ekkert. Betra seint en

aldrei. En hún sýnir,hve stjórn-

in er örþrifaráða, að afla ekki

olíunnar fyr en vertíð er löngu

byrjuð.

það er því auðsjáanlega ekki

af vaxandi áhuga fyrir hag

sjávarútvegsins á vertíðinni,

sem stjórnin hefir tekið þennan

fjörkipp.

Er það ekki heldur eitthvað

í sambandi við það, að Alþingi

á að heyjast í vetur? Gott, að

geta sýnt því árvekni sína fyr-

ir velferð sjávarútvegsins.

Hvernig sem þessu er farið,

þá kemur „fjörkippur" þessi á

þeim tíma svo óvæntur og ó-

eðlilegur, að hann virðist eins

líkur því að vera ein hræring í

dauðateygjum stjórnarinnar.

Útgerðarmaður.

Einokun,

Eins og menn vita, hefir

Landsverslunin einokun á kol-

um og sykri og selur nú hvort-

tveggja langt yfir markaðs-

verði.

Margur hefði haldið, að

stjórnin léti hér við sitja og

gengi ekki lengra í einokunar-

áttina.

En hvað skeður?

Nú skýrir stjórnarblaðið frá

nýju frumvarpi, sem er á döf-

inni hjá stjórninni, þess efnis,

að Landsverslunin eftirleiðis

eigi að hafa einkasölu á allri

matvöru er til landsins komi.

Landsverslunin á að hafa ein-

okun á öllum nauðsynjavörum,

en óþarfinn á að vera frjáls.

þetta er alveg ný tegund rík-

isverslunarreksturs, sem hér er

á ferðinni. Annarstaðar í heim-

inum er það ríkið sem hefir ein-

okun á ýmsum munaðar- og

óþarfavörum, svo sem tóbaki,

spilum o. fl. Hér aftur á móti

er það nauðsynjavaran, sem

ríkið ætlar að taka í sínar hend-

ur. Hvað á að gera við ágóð-

ann af þessari sölu? Hann á að

renna í stofnsjóð Landsverslun-

arinnar — þeirrar versiunar,

er öll þjóðin vill afnema.

þetta frumvarp ætti auðvitað

ekki að koma mönnum að

óvöru, því það er í fullu sam-

ræmi við aðrar gerðir núver-

andi landsstjórnar, því hjá

henni er alt á eina bókina lært

— að auka dýrtíðina í landinu.

það er ekki hægt að gera sér

aðra grein fyrir þessum aðför-

um stjórnarinnar en að það sé

í dauðateygjunum sem hún ger-

ir slíkt.

Og það er það líka!

Framboð til þings

og leynileg atkvæðagreiðsla

Frambjóðendur D-listans

telja það brot á anda laganna

•um leynilegar kosningar, að

tekinn sé eiður af mönnum í

heyranda hljóði um fylgi við

þingmannaefni, svo sem nú á

sér stað um meðmælendur.

fetta fyrirkomulag við fram-

boð til þings eða við aðrar

kosningar vilja þeir afnema.

Lögin um leynilegar kosning-

ar eru einmitt sett til þess að

tryggja þá menn fyrir að geta

verið í friði með skoðanir sínar

og sannfæring, sem kunna að

vera öðrum háðir fjárhagslega

eða af öðrum ástæðum. En með-

mælendafarganið, ekki síst eins

og það nú er orðið, brýtur alveg

bág við þenna tilgang. Ef um

ósjálfstæða kjósendur er að

ræða eða háða öðrum, standa

þeir alveg varnarlausir uppi, þá

er að þeim er lagt að gerast

meðmælendur. Hér er engin bót

í máli, þótt halda mætti því

fram, að kjósandi geti „keypt

sér frið" með því að gerast

meðmælandi eins lista og síðan

kosið annan á laun. Slíkum

hugsunarhsStti mælir' enginn

heiðvirður maður með.

Fyrir því vilja þingmanna-

efni D-listans láta afnema með

öllu að þess sé krafist af fram-

bjóðendum, að þeir hafi með-

mælendur, en í þess stað, — til

þess að fyrirbyggja sprenging-

arlista og framboð í blindni og

upp á strákskap, — að fram-

bjóðendur setji veð, segjum

1000 kr., sem þeir tapi, er ekki

fái ákveðinn hundraðshluta

greiddra atkvæða. þessi aðferð

er notuð í breskum löndum og

hefir reynst vel.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4