FRÓDI 197 minnið, hæfileikinn til að lyfta huganum upp á and- legar hæðir. Hvaða skepna heföi getað ort "Hrafninn", eða "Thanatopsis" eða samið leikrit "Shakspeares", eða "Gib- bons History of Rome" eða "Cesare Cantus" veraldarsögu og unnið öll þessi andlegu störf. Það er hlcegilegt að þurfa aðminn- ast þessa. En vísindamennirnir telja skilnaðar markið þar, sém persónuleikinn, "égið" kemurfram. Dýrin hafi ekki þann hæfi- leika. Þau geta ekki hugsað um sína eigin persónu og borið hana saman við aðrar persónur, eða séð muninn á sér og öðrum. Og ef að vér vandlega skoðum byggingu dýraheilans og manns- heilans og berum þá saman, þá sjáutn vér hvernig á því stendur. Þeir hlutir heilans, sem stýra sjóninni, heyrninni og lyktinni, eru þroskaðir hjá dýruuum, og eins hinn smái heili, en framheil- ann vantar aðallega, eða hann er svo smár og ófullkominn, að cellurnar eru þar öðruvísi og þræðir úr þeim í allar áttir. Menn hafa kallað þennan hluta heilans: Þagnarheim, "Silent areas", af því menn gátu ekki fengið vitneskju um, hvað þar væri fram að fara. En nú er þetta hinn eini staður heilans, sem byggileg- ur er, fyrir þenna hinn dularfulla, þögula og vitra, sem stýrir öllum öfium mannsins til sálar og líkama. Þarna er því aðal bú- tsaður sálarinnar. Ég segi aðal bústaður, því aö menn mega ekki gleyma því, að sálin býr í ölium heilanum og öllum Iíkam- anum. En þarna er hennar aðal bústaður, og þaðan stjórnar hún öllum þessum ríkjum eður þjóðfélögum, sem í sameiningu mynda líkama mannsins. Þarna situr viljinn og staðfestan og sjálfstjórnin. Þetta er höfuðbólið. Þarna situr haun hinn dularfulli og ber saman nýj- ar hugmyndir og gamlar, rifjar upp þúsund ára endurminningar, skygnist níður í hina hyldjúpu hafsbotna djúpvitundarinnar og lætur draga þar upp hugmyndir nýjar og gamlar. Hann veit af hnldum hæfileikum, sem mundu gjöra manninn margfalt færaó og fullkomnari, en hann er nú, ef hann kynni eða nenti að nota þá. Þarna er þá miðpunktur alls hins sálarlega lífs manns- ins. En þó mega menn ekki hugsa sér það, að hið sálarlega líf mannsins sé þarna innibyrgt á þessum litla bletti eins og fangi