206 FRÓDI Kosningar. Nú er hún að byrja kosningin þessi, að kjósa þingmann til þess að stýra málum fylkisins næstu fjögur árin, og um alt fylkið eru menn að halda ræður hver með sínum mönnum óefað af sannfæringu fyrir málefnunum og sínum eigin hag. Hér eru eiginlega ekki nema tveir flokkar: Liberals hinir frjálslyndu, of Conservatives, eða menn- irnir sem halda vilja í horfinu, en af andstæðingum sínum cru kall- aðir afturhaldsmenn. Hefir flokkur sá haldið stjórnar taumunum í 14 ár undir forustu stjórnarformanns síns, Sir Rodmond P. Roblins. Undarleg Barátta Hún er nokkuð undarleg núna þessi barátta, einhvernveginn öðxuvísi en allar aðrar, sem ég hef þekt þessi 27 ár sem ég hef verið hér í Ameríku, og ég hcld öðruvísi cn nokkur önnur barátta, sem ég hef þekkt á æfi minni, eða jafnvel heyrt um getið, eða um lesið í sögum þjóðanna. En það verður æfinlega að koma eitthvað nýtt fyrir, hvort það er mönnum til bölvunar eða bóta, það er ýmist. því að menn cru vanhyggnir stundum. Roblín og Verk Stjórnar Hans Ef að menn líta aftur til baka í sögu fylkis þessa þá sjá menn að aldrei nokkurn tíma hefir verið unnið að velferðarmálum fylkisins með eins mikilli atorku og dugnaði, með eins miklu vlti og hyggind- um og framsýni eins og einmitt núna þessi seinustu árin, aldrei hefir fjárpyngja fylkisins veiið jafn þung eða fyrirferðarmikil; hinar feg- urstu, glæsilegustu og traustustu opinberu byggingar eru reistar. Akuryrkju skóiinn er líklega fegursti og fullkomnasti akuryrkju skóli heimsins og allur hans útbúnaður í bezta lagi. Járnbrautar- netið hefir verið fléttað um fylkið án þess að kosta alþýðu eitt ein- asta cent, talsímarnir hafa verið tcknir úr höndum eins þcssa félags, sem hugsar ekki um annað, en að græða peninga og féflctta alþýðu og allir voru farnir að veina og kvarta undan, teknir úr höndum þeirra og leiddir út um borg og bygðir til hverra þeirra sem vilja hafa þá. Ætli menn virkilega vildu nú láta það verk ógjört? Og nú græðir fylkíð penínga á símunum. Hvar er nú ópið og hrópin sem hvinu í loftinu fyrst um þau mál? Og fylkið sjálft, það er nu helf- ingi stærra en áður, eða meira, helfingi ríkara, milíónir í sjóði þar sem ekkert var áður. Og maðurinn sem g.iörði*petta, scm gjörði það sem enginn gat áður, að auka hinum miklu flákum við landið, að safna milíónum fyrir i'ylkisbúa, að efla og styrkja allar mcnta stofn- anir, að flétta járnbrautarnctið, það á nú að reka hann og alla þá, sem honum hafa hjal]>að og stutt hann til þess, reka hann út í hin