210 FRÓDI æfinlega sýnt það, heilbrygð skynsemi sýnir það hverjum sem notar hana. Siðferðisskyldan krefst þess nú og ætíð. Einmitt núna í þessum kosningum. Grundvöllurinn Fyrir Framtí'ðina LagSur Nú Þið eruð komnir hingað í þetta nýja land til þess að reisa taú- staði handa yður sjálfum og leggja grundvöllinn að velferð afkom- enda yðar, ætlið þér virkilega að snúast á móti þeim, sem mest og bezt hjálpa yður til þess. Ætlið þér að láta ginna yður með ein- hverju glamri, sem einskis er virði? Lítið þér á verkin vinir mínir, lítið þér á það sem taúið er að gjöra fyrir yður. Fylgið stefnunni sem bezt hefir gefist yður, fylgið mönnunum, sem aldrei hafa brugð- ist yður, mönnunum, sem þér sjálfir vitið að ekki munu gjöra það. Mönnunum, sem líklegastir eru til þess að búa til beztu framtíðina fyrir börnin yðar, fyrir fylkið, fyrir hina stóru þrekmiklu, drcng- lyndu, ffjálsu þjóð, sem á eftir að vaxa upp í landi þessu. í>ér getið nú litið upp til foringjans, vikingsins harðsnúna, ræðumannsins, stjói'nmálamannsins, fjármálamannsins, drengsins góða, sem nú ber stefnu Konservatíva á hinum þróttmiklu herðum sínum, mannsins, sem aldrei hefir brugðist vinum sínum. Styrkið hann með því, að senda á þingíð góðan mann til að fylgja honum en ekki til að ganga í andstæðingaflokk hans. En færi nú svo að menn fyrir vanhygni létu vélast til þess að gleypa við agni því sem vinir vorir andstæðingarnir beita öngla sína með, þá er það grunur vor að þeir muni margir yðrast undir eins og þeir finna öngulinn fastan í koki sér og komist þeir inn hinir þá muni mena angistarfullir bíða þéirrar stundar, er þeir geta fengið tækifæri til að losast við þá. Komið Eoblin inn og sem fiestum góðum mönnum með honum af hvaða þjóðflokki sem þeireru. M. J. SKAPTASOJST. JSXK&^