FRÓDI 217 E. L. TAYLOR lögmaður seekir í St. George kjördæmi. Tók við kjördæmi B. L. Baldvinssonar, ræðumaður og mikilsmetinn. Löndum myndi hraplcga missýnast, ef að þeir' gæfu honum ekki atkvæði sín, þeir mundu þar hrinda gæfu sinni, því að hann er vel mctinn af þeim er við völdin sitja nú og árciðanlega munu hafa taumhaldið fram- vegis. Honum væri því lótt að halda fram málum þeirra og muna ættu þeir alt það, sem fram var lagt seinast til þeirra og veganna þar, og líta til þess, að þeir þurfa að hafa mann sem flytur mál þeirra, annast um vegi og samgöngur og gjörir þeim allan þann greiða, sem góður þingmaður getur gjört kjósendum sínum. Skildu þeir vilja hafna þessu? Er ekki þörfin brýn? Vilja þeir ekki komast í sem bezt samband við mannfélagið, hafa sem mest þægindi, geta komist um sína cigin sveit, geta notið gæða landsins eins og þeir ættu að njóta þeirra? En hafni þeir honum. Hver gjörir þá þessa hluti? Enginn! því að maður 1 minni hluta hefir iítið að scgja og getur litlu framkomið þó að maðurinn sjálfur sé bezti og ágætasti drengur. Kjósið Taylor.