220 FRÓÐI laust, að hvergi nokkurstaðar í hinu brezka veldi sé annað eina olíuland og í Peace River. Það er maðurinn sem í vetur fékk leyfi stjórnarinnar í Ottawa að leggja járnbraut þvert yfir landið um Dunvegan, Peace River Crossing og Ft. Vermillion og kallast braut sú Pacific Peace River and Athabasca járnbrautin, kemur vestan frá hafi, og er braut sú bygð til bess að opna kola og olíunámur í norð- austur British Columbia og Norður Alberta. Þeir eru nýbyrjaðir á brautinni við Naras River í British Columbia og halda henni austur og hafa fuilar hendur fjár til að halda henni áfram. 3?á er Grand Trunk félagið að byggja frá Vancouver til Eort George undir nafninu Pacific-Great Eastern, hefir verið að því í tvö ár og nú í vetur sem leið fékk bað 35,000 dollara ábyrgð á míluna frá British Columbia stjórninni og eru nú síðan í vetur byrjaðir að byggja frá Fort George up í Peace Pass í Klettafjöllunum og baðan skal svo halda ofan Peacc River dalinn og samtengjast Edmonton Dunvegan brautinni í Dunvegan. Á hún að vera full gjörð innan tveggja ára hérfrá. Er hún bygð mest til að keppa um flutning frá Peace River dalnum við borgina Edmonton og brautir þær er frá henni liggja. Landtökur í Peace River dalnum hafa eftir útkomnum stjórnar- skýrslum nær fjórfaldast þetta árið við árið í fyrra. En búist er við að mestur fjöldinn flytji næsta vetur og vor þegar brautir eru komn- ar inn í dalinn. Eitthvað 8 landar fluttu í vor áleiðis til Peace River. Fóru með Edmonton brautinni norður undir Lesser Slave Lake. Þaðan á bátum til Grouard við vestur enda vatnsins. Létu þeir ágætlega af sér, sögðu alt' líflegra og fjörugra þar en hér. Bíðið þið við landar, en þó ekki of lengi. Þarna er framtíðin fyrir alla þá, scm hafa hraustar hcndur, áræði og úthald, ég tala nú ekki um þá sem hafa heilt eða hálft kúgildi af ungum efnilegum sonum, þeir geta allir orðið stórbændur þar, ef þeir vilja nota krafta sína með þrautsegju og fyrirhyggju.