8 heima í minni sveit væri það talið ókristilegt að spila á jólanóttina? Það er ekki þar fyrir, fólkið hérna í bænum er einstaklega kyrkjurækið um jólin, en eg hefi enga ánægju af að hlusta á skrækina í stelpunum né bölvið í strákunum, þegar verið er að troðast inn i kyrkjuna; og því hét eg, er eg loks komst inn í kyrkjuna við kvöldsönginn á aðfangadagskvöld- ið, að langt skyldi verða til þess að eg hætti mér aftur í aðra eins þvögu. Þá var munur að fara til kyrkju um jólin heima, þótt leiðin væri lengri og færðin lakari stundum. Hér er, heid eg, hvergi farið með gott orð i beimnhúsum nm jólin, fólkið ýmist sefur eða etur og drekk- ur á daginn, en vakir allar nælur við skemtanir. Og eg hefi orðið að ber- ast með straumnum, og því ekki get- að lesið neitt að ráði í bókunum, sem alt af eru beztu vinir minir síð- an eg fór að heiman. Eitt kvöldið var eg þó laus við ó- næði og las allmikið um frelsisstríð Niðurlendinga. Sambýlismaður minn kom ekki heim fyr en eftir miðnætti,