12 II. Jólaminning úr 5. bekk. »Mikið verður þú orðinn breyltur, þegar námi þínu er lokið«, sagði hún við mig ein heimasætan, þegar eg var að læra undir skóla. Eg tók því fjarri þá, en sé nú, að hún hafði rétl að mæla, þótt náminu sé ekki lokið. En sárt er þess að minnast, að ein- mitt hún skyldi þurfa að fella nokkur tár vegna þeirra breytinga. Eg var llón, lét sjálfsagt »ásta«-sögur kunningja minna hafa áhrif á mig, og hélt,að egþyrfti að segja henni frá því, að mér væri betur til hennar en annarra vandalausra stúlkna.-------En-henni varð það harmur, þegar hún sá hvað lítið mark var takandi á þessháttar játningu »kastringsins«a). Henni verð- ur það liklega æfilangur skuggi, og það verður eitt af því, sem eg get aldrei bælt. Eg minnist þessa sérstaklega nú, því að mér hefndist fyrir á þessum nýliðnu jólum. 1) Kastringar var skólanafn á piltum í 2. bekk.