81 segja honura? Á eg svo ekki að skila þakklæti frá þér?" Jú, innilegu þakklæti, þv( það var hann sem kendi mér, að guðs ríki væri á himn- um og að þar væri líka heimili mitt. Stund- um hefi eg gleymt því, en það hefir þó alt af geymst í hjarta mínu. Það er lika það sem dregur mig inn í ríki guðs í dag í dag. O, presturinn minn!" Hjúkrunarkonan tók urh hendur hans með hægð, lagði þær saman og sagði: Faðir vor, þú, sem ert á himnum". Segið þér honum " Eigum við ekki að biðja saman, góði drengurinn minn?" Jú, en segið honum, að á meðal hinna mörgu, sem munu fagna honum hinumeginn, verði einnig fátækur drengur, er hann eitt aðfangadagskveld á fátækrahælinu í Kjöl- strup, kendi að þekkja Jesúm Krist, sem frelsara heimsins". Hjúkrunarkonan lá á knjánum við rúm- stokk drengsins og kyrkjuklukkurnar í Fred- rikstad fóru að hringja jólin í garð. III. Louise!" Já, eg er hérna". Vilt þú ekki lesa þetta bréf fyrir mig. Kg var að reyna það, en eg sé ekki rétt vel í kveld". Það er leiðinlegt, á eg ekki að láta sækja læknirinn? Gullbniðkaupið er á morgun". Þetta er ekkert, góða mín, en eg þoli