IÐUNN Þrjú þúsund, þrjú hundruð og sjotíu og níu dagar úr lífi mínu. [í vikublaði pólilískra esperaniista, sem þjóölausa alheimsfélagið (Sennacieca asocio tutmonda, skamm- stafað SAT) gefur út í París og Leipzig, koma að jafnaði greinar með fyrir- sögninni Dagur úr lífi mínu. Greinar þessar eru flestar ritaðar af verka- mönnum og Iýsa atvinnu- leysi, hungri og volæði eða tilbreytingarlausu, drepandí striti á ökrum, í verksmiðj- um og námum auðvalds- forkólfanna. Við lestur þessara fá- breyttu eymdarlýsinga flaug mér í hug að skemta esper- antólesendum úti um heim með stuttorðri frásögn af fróðlegu tímabili úr mínu lífi. Ég valdi mér til frásagnar dagana frá 1. október 1918 til 1. janúar 1928. Fyrirsögnin að ritgerð minni varð því Þrjú þúsund, þr/ú hundruð og sjötíu og niu dagar úr lifi minu. Ritstjórinn tók grein minni fegins hendi, birti hana í blaðinu fyrir nokkrum vik- um og gaf henni þann vitnisburð, að ég væri einn af beztu stíl- istum, sem ritað hefðu esperantó. Fleiri esperantólesendur og rit- höfundar hafa vottað mér hrós sitt og þakklæti. Eg get þessa hér af þeim ástæðum, að ýmsir landar mínir hafa lagt töluvert kapp á að telja mér og öðrum trú um, að sú vinna, er ég hefi fórnað í esperantólestur þrjú síðastliðin ár, bæri aldrei neinn sýnilegan Þórbergur Þórðarson.