160 Frádráltur. IÐUNN selors), hefir gefist svo vel, að í Los Angelos hefir þeim fjölgað úr þremur árið 192122 og eru nú 38. Árið 192425 fór fram ýtarleg skólarannsókn í þeirri borg. Komu þá í ljós áhrifin af þessari nýbreytni. Skól- arnir voru víðsvegar um borgina, og kom hvert atriði rannsóknanna fram í skýrslunni, svo að þar var hvorki um undandrátt né úrval að ræða. Rannsókninni var hagað þannig, að mælingar fóru fram tvisvar og liðu 7,2 mánuðir á milli. Auk vitprófs var prófað í þremur námsgreinum: lestri, stærðfræði og stafsetningu. Framförin, þar sem ráðunautarnir störfuðu, reyndist að vera 1,3 mán. að meðaltali á barn á þess- um 7,2 mánuðum fram yfir það, sem við hefði mátt búast að öðru jöfnu.1) Að hér varð meiri árangur en ella, virtist ekki geta stafað af öðru en því, að skóla- ráðunautarnir höfðu umskapað skólaástandið. Þessa auknu framför var auðvelt að reikna til pen- inga. Skólakostnaður við hvert barn var það ár til jafn- aðar í borginni 83,64 $. Af skólatímanum fóru til lestrar ll,70/o, til stærðfræði ll,7<Vo og til stafsetningar 5,0<Vo. Skólaárið er tíu mánuðir. Er þá auðvelt að sjá til- kostnað á mánuði á hvert barn og hvers virði hinn aukni árangur var, og þá verður dæmið svona: Viröi aukins Aulíinn árangur. Kosin. á mán. árangurs. Lestur..... 1,1 mán. 0,98 § = 1,08 $ Stafsetning . . 2,3 0,42 $ = 0,97 $ Stærðfræði . . 0,4 0,98 $ = 0,39 $ Samtals 2,44 $ Meðalfjöldi nemenda í hverjum skóla var 335. Sé það 1) Hér er aðgætandi, aö viö síöara prófið var miðaö við hærri kröfur.