IÐUNN Þýðingar úr sænsku. Vísuv hjatðsveinsins. (Óskar 11.). Vakir í skógi vindblæv kliðandi. Velta og hrynja elfur niðandi. Smáöldur vatni vagga; velta hljóðar inn að Silju strönd. Tunglið í skýjum glðir glitrandi. Glampa frá bæjum kvöldljós titrandi. Fjallanna brúnir faðma fögur, yndisfögur norðurljós. Fanginn í náttkyrð heiðaheimanna, heillaður töfrum stjörnugeimanna, aleinn ég sit hjá sauðum, syng af öllu hjarta gleðiljóð. Sagan um Rósalind. (E. A. Karlfeldt). Nú streymir Ijós og streymir um strönd og fjallatind. Mig dreymir æ og dreymir minn draum um Rósalind. Eg gekk í lund í gær og glóð mér fylgdi mær. Við sátum lengi saman við söng og allskyns gaman.