Kirkjuritið. KIRKJURITID. Kirkjuritið", sem nú hefur göngu sína, tekur beint við asf Prestafélagsritinu" og\ Kirkjublaði" og á að koma í þeirra stað. Var ákveðið á síðasta aðalfundi Prestafélagsins, að ritin skyldu sameinuð með þeim hætti. Ýmsar orsakir liggja til breytingarinnar. Það er kostnaðarminna að gefa ut eitt timarit en bæði ársrit og hálfsmánaðarblað, og auðveldara að gjöra það vel úr garði að efni og öllum frágangi heldur en tvö rit hvort í sínu lagi. Ennfremur getur tímarit, sem kemur út við og við, betur látið það fara saman, að birta ítarleg er- indi og flytja kirkjulegar fréttir, innlendar og útlendar, og greinar um þau mál, sem kirkjana varða á líðandi stund. Markmiði Kirkjuritsins" er þegar lýst með nafni þess og því, að það er gefið út af Prestafélagi íslands, sem vill fyrst og fremst vinna að glæðingu trúarlífsins með þjóðinni og að sem mestu samstarfi milli presta innbyrðis, og presta og safnaða landsins. Kirkjuritið" á að verða einn þátturinn í því starfi félagsins, alveg eins og Prestafélagsritið" áður. Ef til vill hefir aldrei, siðan kristni var lögtekin á íslandi, verið meiri þörf en nú á kristilegum áhrif- um á þjóðlíf vort. Bein árás er hafin gegn trú og kristindómi, gjört gys að bænarhug og tilbeiðsluþrá. Einkum er barist um æskuna, reynt að rífa burt kristnina úr brjóstum henn- ar og gróðursetja heiðni í staðinn. Barnssálunum á ekki lengur að gefa guðlegar myndir", heldur leiða þær inn í Surtshelli efnishyggjunnar". Hversu áskemtilegt sem 1