Kirkjuritið. Kirkjuritið. 3 gjarnt starf fyrir aðra og sjálfsfórn er grundvöllur alls siðgæðis og þess húss, er stendur, hvernig sem stormar og fljót dynja á því. Lang fegurst birtist þetia í lífi Jesú sjálfs. Kristur, krossfestur og upprisinn, mun verja þjóð- ina falli, ef hún aðeins fær skygnst á bak við tímans tjald og tekið á hans minsta klæðafald". Hann sem kom ekki til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna og til þess að gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga, hann á að verða konungur vor, frelsari vor, leiðtogi og fyrirmynd. Það veitir þroskann á guðsríkisbraut. Fyrir þessum miklu sannindum vill Kirkjuritið" láta trúfræðilegar flokkadeilur þagna. Það kýs að leiða þær hjá sér eins og Prestaf'élagsritið" gjörði, þótt það að sjálfsögðu muni flytja bróðurlegar rökræður um trú- fræðileg efni, er það telur þær til þess fallnar. Nú er öll- um þeim, er unna kristni og kirkju, fylsta nauðsyn þess að standa þéti i fylking saman og minnast þess, að það er boðun kristindóms í verki, sem mun hafa mest áhrif og verða sigursæl. Kirkjuritið" heitir á alla góða menn um liðsinni eftir því sem þeir geta hver og einn, að þeir afli því sem flestra lesenda og kaupenda og sendi því ritgjörðir og fréttir, eitthvað, sem örfar, leiðréttir misskilning, gefur nÚja útsýn, yljar hjartanu, upplýsir skynsemina og styrkir og hvetur viljann. Sex prestar hafa þegar heitið ritinu sérstakri aðstoð sinni til þess að létta undir með ritstjórunum, sem hlaðn- tr eru öðrum störfum. Eru þeir úr öllum landsfjórðung- um, og mun mikill styrkur að starfi þeirra. Þessir með- starfsmcnn eru: Séra Benjamin Kristjánsson, Tjörnum. Séra Guðmundur Einarsson prófastur, Mosfelli i Grims- nesi. Séra Gunnar Árnason, Æsusttíðum. Séra Öskar I3orlúksson prófastur, Kirkjubæjarklaustri. Séra Sigur- geir Sigurðsson prófastur, ísafirði. Séra Sveinn Víking- ur Grímsson, Dvergasteini. Um útsending ritsins og innheimtu mun annast fé- V