Kirkjuritið. OXFORDHREYFINGIN NÝJA. Ágrip af sögu hennar. Eitt af því, sem nú vekur mikla athygli í kristnilífi heimsins, er Oxfordhreyfingin nýja, eða The Oxford group movement". Hún hefir á síðustu árum breiðst óð- fluga um lönd og álfur, svo að undrum sætir. Þykir ýmsum, sem þar rísi afturelding eftir stríðsnóttina og muni hún eyða sortaskýjunum i lofti, svo að ekki komi úr helskúrir yfir nútímakynslóðina enn á ný. Henni fylgir sá máttur, að enginn fær dulist, er virðir fyrir sér opnum augum andlegu veðrabrigðin á vorum dögum. Og einnig hér norður i höfum eru þeir teknir að gefa henni gætur, sem áhuga hafa á trúmálum og láta sig nokkuru skifta stefnu þeirra og strauma í veröldinni umhverfis oss. Heitið Oxfordhreyfing á þessari stefnu er ekki alls kostar heppilegt né réttnefni. Því að fyrst og fremst heitir þannig önnur eldri stefna á Englandi, hákirkju- leg, frá fyrri hluta 19. aldar, og svo er hreyfingin ekki í fyrstu frá Oxford runnin, heldur er það Vesturheims- maður, sem hrindir henni af stað. Frank Buchman heitir hann og er fæddur 1880 í Pennsborg i Pennsylvaniu. Nam hann skólalærdóm sinn þar vestra og lauk háskólaprófi i guðfræði. Var hann heldur óframfærinn á skólaárum og þótti ekki mikið að honum kveða. Eldi mjög lengi af óframfærni hans og löngu síðar, þegar tekið var að skrifa bækur um