Kirkjuritið. Oxfordhreyfingin nýja. 9 mans. Og áður en 3 ár voru liðin frá komu hans, sóttu 1200 stúdéntar Bibliu-lestrarfundi. Buchman starfaði við háskólann til 1915. Þá fór hann á vegum stúdentatrúboðsins til Indlands og Japans. Dvaldi hann þar 1 ár. Næsta ár var hann guðfræðikenn- ari og ferðaðist svo á ný um Austurlönd 19171919. Hvar sem hann fór, laðaði hann menn að sér, eignaðist trúnað þeirra og vakti hjá þeim kærleika til Krists. Á næstu árunum eftir heimsstriðið varð honum það ljóst, að hvergi í enskumælanda heimi væri kristnilíf jafn þróttlítið og i háskólum Bretlands og í Vesturheimi, en hvergi heldur jafnmiklum kröftum á að skipa til andlegrar vakningar, ef Kristur tæki þá i þjónustu sina. Hvernig yrði vakinn kristindómsáhugi hjá þessum ungu og gáfuðu mentamönnum? Til þess taldi hann vænleg- astar samkomur með heimilisblæ, houseparties", þar sem kristnir menn segðu frá trúarreynslu sinni hispurs- laust og blátt áfram. Þá myndi andi Krists fara eldi um sálir áheyrandanna. Fyrsta heimasamkoman hafði verið haldin sumarið 1918 í Kuling i Mið-Kína. Þar höfðu um hundrað Kín- verjar og kristnir útlendingar af ýmsum stéttum dvalið saman i hálfan mánuð, sagt hverir öðrum frá dýrustu trúarreynslu sinni og fengið mikinn styrk við það. Tveimur árum síðar kom Buchman til Cambridge á Englandi og hafði meðferðis bréf til sona allmargra þeirra manna, sem hann hafði kynzt i Austurlöiidum. Þaðan fékk hann svo með sér 2 unga Englendinga í heimsókn til háskóla í Bandaríkjunum. Næsta sumar, 1921, var haldinn í Cambridge sameiginlegur fundur fyrir háskólamenn bæði frá Oxford og Cambridge. Ahrif hans urðu afarmikil. Boðskapur Nýja-testament- ísins varð fjölmörgum stúdentum nýr sannleiki og olli gjörbreytingu á lífi þeirra. Nokkuru síðar var skrifuð fyrsta bókin um hreyfinguna. Það gjörði Harald Begbie rithöfundur, er hann hafði sannfærzt um gildi hennar