14 Fæddur til þess að fækka tárunum. Kirkjuriti'ð. undir leiðsögn Guðs til þess, að endurreisnin komi skjótt, endurfæðing sannrar trúar. Og af slíkri vakningu á að leiða ný skipun á félagsmálunum. Nú þegar er unt að eygja nýju kirkjuna rísa, nýju fjölskylduna, nýju menninguna, nýju skiftinguna á jarðargæðunum ávöxt andans". Ásmundur Guðmundsson. Fæddur til þess að fækka tárunum. 1 ávarpi til gagnfræðinga 1934 komst Sigurður Guð- mundsson skólameistari á Akureyri meðal aimars svo að orði: Vér fáum eigi efast um raunveruleik mann- legrar þjáningar og mannlegra sára. Þjáningin vofir sem voða-gammur yfir öllu lífi, og þessvegna fáum vér eigi forðast hana né flúið. Það er einnig víst, að vér þráum allir linun á þjáning vorri, i hverju gervi sem hún mæðir oss. Vér þráum allir raunabót og sárabót. Af þessari miklu staðreynd, óvefengjanlegri sem dauð- inn, virðist mér leiða eitt boðorð, sem eigi verður rengt né efað, að hlýða ber. Séra Matthías kom eitt sinn, í viðræðu við ungan skólapilt, að likindum á sama reki og þið, einfaldlega og eftirminnilega, orðum að þessu mikla lífsboði. Sveinninn sýndi honum kvæði eftir sig. Skáldið lét lítið yfir Ijóðunum. I stað þess bað hann piltinn að vanda vel alt, sem hann setti saman, og vanda líf sitt. Og hann bætti við: Því að þú ert fæddur til þess að fækka tárunum í veröldinni".