Í8 Sigurður P. Sívertsen: KirkjuritiS. liann skrifað en grein sú, er cand. theol. Dagbjartur Jónsson birti í Prestafélagsritinu" árið! 1932. Hafði hann kynzt Kirkjuhernum og stofnanda hans, meðan liann dvaldi í London veturinn 1932, og skrifaði um hann með miklum hlýleika og skilningi. En þeim, sem þá grein hafa lesið og vilja fá frekari fróðleik um starf- semi þessa, vil ég vísa á ágæta bók um herinn, er heitir: Wilson Carlile and the Church Army". Bók þessi er 222 bls. að stærð, með mörgum ágætum myndum, en kostar aðeins tvo shillings". Hana má panta frá The Church Army Bookroom" i London. I bókinni er áhrif a- rík lýsing á fórnfýsi og trúaráhuga Wilson Carlile, á baráttu hans og meðstarfenda hans, og á hinum mörgu og fögru sigrum, er unnir voru undir merkjum Kirkju- hersins. Skemtilegri og áhrifameiri bók hefi ég sjaldan lesið. En mest um vert væri, ef einhver landa vorra vildi kynnast starfsemi þessari til hlítar af eigin sjón og reynd. Það væri hollur skóli fyrir áhugasama leikmenn, sem vildu starfa fyrir málefni Krists á landi voru, að kynnast þessari kirkjulegu starfsemi. Sú ósk var rík i huga okkar í sumar, að einhver landi okkar gæti gengið í skóla Kirkjuhersins i London, og var okkur sagt, að ef kostur væri á góðum manni til slíks náms, myndi hann verða boðinn velkominn og að honum hlynt. Fátt eða ekkert myndi kirkju vorri gagnlegra á þessum érf- iðu tímum en að fá sérmentaða leikmenn að fyrirmynd Kirkjuhersins til samvinnu við presta vora, ekki sízt í fjölmennustu söfnuðum landsins. S. P. S.