KirkjuritiÖ. Kirkjuklukkurnar í Sevilla. 29 Súliir og bogar í Mezquitunni" i Cordova. eða yfir 1000 að tölu. Veggir voru þá engir, heldur var á flesta vegu alt opið, og hefir það verið miklu fegurra. En síðan var farið að káfa í þetta furðuverk. Ramm- ger múr var reistur umhverfis og garður á einn veginn. Er því byggingin eins og vígi eða kastali á að líta, ófög- ur og ómerkileg nema að stærðinni. Eftir að Márarnir höfðu verið reknir á brott, var >»niezquitan" notuð til kristinnar guðsþjónustu. En lakast var það, að kirkja var reist inni í henni miðri, og í því skyni rifnar niður súlur og hvelfingar. Þegar Karl V. keisari sá þessa kirkju (sem er falleg út af fyrir sig) er sagt að hann hafi mælt svo: Hér hafið þið reist kirkju, sem allir gátu reist alstaðar, en eyðilagt það, sem hvergi atti sinn líka!" Óneitanlega virðist það líka dálítið und- arlegt, að geta ekki fundið blett undir þessa kirkju annarsstaðar en inni i miðri mezquitunni"! En þrátt fyrir allar þessar aðfarir er þetta hús þó eitt af fiirðuverkum heimsins. Hér er yfirbygt torg eða skógur