Kirkjuritið. Kirkjuklukkurnar í Sevilla. 33 Útsýn yfir dómkirkjuna i Scvilla. ára verk að kynnast því öllu vel og vandlega. En á hinn uóginn verður hann til þess, að útsýni tapast um sjáll't »miðskip" kirkjunnar. Hér um bil fyrir suðurhlið kirkjunnar, við annan enda þverskipsins" er minnismerki Kristófers Kólum- uusar. Hingað, í landsins mestu kirkju, voru likamsleif- ar hans fluttar fiá Havanna, árið 1898. A fótstalli mikl- um og háum er táknleg mynd. Fjórir menn, sem eiga að tákna hin fjögur spönsku konungsríki, ganga þar og uera kistu Kólumbusar. En alt í kring er letur, og þar Segir svo: Þegar eyjan Kúba losnaði frá móðurlandinUj Spáni, tók Sevilla í faðm sinn leifar Kólumbusar, og hæjarráðið lét gera þetta minnismerki, árið 1898. En nú heyrast alt i ei'nu drunur, eins og fjallið ætli að fara að gjósa. Það er byrjað að leika á orgelið. Omögulegt er að hugsa sér nokkra hljóma fegurri eða voldugri, en orgelhljóma í stórri dómkirkju. Hversu sterkir sem tónarnir eru, þá taka hvelfingarnar þá, margfalda þá og mikla og fága þá jafnframt og mýkja. 3