Kirkjuritiö. Sálmaskáldið Thomas Kingo. 37 inum út yfir djúpið mikla, eins og þær hendi hljómun- um út i kvöldloftið. Þeir leggjast æ fastara á strengina, sveiflast æ hærra frá gólfi, klifra enn hærra, sveifla strengjunum enn taumlausara, en hraðinn á klukkunum eykst. En svo er hætt. Klukkurnar sveiflast lausar og hægja a sér. Þá gengur einn að, þar sem Santa Maria bíður kyr, og rekur ógurlegt högg í klukkuna. En hún svarar uieð þrumuraust, sem yfirgnæfir allan hinn kliðinn, eða svelgir hann í sig. Og í faðmi þessarar dimmu og mjúku raddar, svífur síðasti hljómur klukknanna í Sevilla út í geiminn. I vestri hverfur síðasta rönd sólarinnar undir hæðirn- ar í fjarska. Magnús Jónsson. Sálmaskáldið Thomas Kingo. Ihomas Kingo hefir verið talinn mesta sálmaskáld, Sem Danir hafa átt. Hann fæddist 15. des. 1634, varð 16?9 biskup í Odense, en andaðist 14. okt. 1703. Það voru því 15. des. 1934 liðin 300 ár frá fæðingu hans. rteíir þessa verið minst í Danmörku með margvíslegu móti og mikið verið um hann ritað. 1 sálniabók vorri eru 25 af sálmum Kingós, flestir Pyddir af Helga lector Hálfdánarsyni. Meðal þeirra má nefna jólasálminn: Upp, gleðjist allir, gleðjist þér" (Sb. 64)' og sálminn: Far, veröld, þinn veg" (Sb. 328).